...
Ef ávinnslutímabil desemberuppbóta var skilgreint “Milli ára” þá þurfti að muna eftir að setja inn eldra ár þegar ávinnslur voru sóttar svo að ávinnslur frá desember á fyrra ári kæmu með. Þetta hefur nú verið útfært þannig að eldra ár kemur með þegar ávinnslur eru sóttar og ekki þarf lengur að muna sérstaklega eftir að setja það inn. Eldra ártalið hefur einungis áhrif á þær ávinnslur sem skilgreinar eru “Milli ára”.
Ekki hægt að opna “Skoða” eða “Skila” ef ekki er skráð stofnunarnúmer á innheimtu í launaskráningu
Ef færsla sem inniheldur innheimtu sem krefst stofnananúmers td. starfsmannafélag kom inn í PayRecord úr föstum liðum eða innlestri eða bara með öðrum leiðum en beint úr "Skrá laun" þá var ekki hægt að opna Skoða eða Skila og villboðin voru ekki mjög skýr. Þetta hefur verið útfært þannig að vöntun á stofnananúmeri hindrar ekki opnun á “Skoða” og “Skila” heldur skilar athugasemd í skilagreinatréið.
...
Hægt er að tvísmella í línuna sem skilar “is null” og fá upp lista yfir þær færslur sem vantar stofnun á. Þar er hægt að draga inn nafn til að sjá hjá hvaða launnþega vantar númer fyrir stofnun.