...
Dæmi: Innlestur á gögnum í starfsmannaspjaldið Banki.
Undirbúningur fyrir innlestur - Dæmi: Innlestur á gögnum í spjaldið Banki |
---|
Byrjað er á því að opna spaldið Banki hjá einhverjum starfsmanni og ýtt á CTRL + (Fn) + F8 í spjaldinu. Þá opnast annar gluggi með lista yfir öll svæði í spjaldinu ásamt tækniheitum þeirra. Í listanum eru tekin tækniheitin á þeim dálkum sem á að setja inn og sett í efstu línuna í Excel skjali. Tækniheitin þurfa ekki að vera í neinni sérstakri röð. Þegar verið er að lesa inn gögn á starfsmenn er fremsti dálkurinn skýrður Tag og fara kennitölur starfsmanna í þann reit. |
Reiturinn Tegund bankareiknings (BankAccountType) er með drop-down lista. Í slíkum tilvikum má finna tækniheiti valmöguleikanna í listanum sem kemur upp þegar smellt er á CTRL + F8. Þetta eru þau gildi sem má slá inn í reitinn BankAccountType í Excel listanum. | |
Svona myndi þá Excel skjalið líta út. |
Innlestur á gögnum í spjald - Dæmi: Innlestur á gögnum í spjaldið Banki | |
---|---|
Þegar Excel skjalið er tilbúið er það vistað sem .csv skrá áður en það er lesið inn. Til að lesa inn skjalið þarf að vita tækniheitið á spjaldinu Banki. Til að finna það er best að ýta á hnappinn Kemba efst í hægra horninu á kerfinu og opna síðan spjaldið. Þá birtist textagluggi neðst í kerfinu sem vísar í heitið á spjaldinu. Tækniheitið fyrir spjaldið banki er EmployeeMasterBank Því næst er tækniheiti spjaldsins sem á að lesa inn í slegið inn í gluggan Skipun neðst í kerfinu + .Import | |
Þá opnast þessi innlestrar gluggi. Innlestrarskjalið er sótt með því að ýta á punktalínuna. Hakað er við hvort að verið sé að stofna (lesa inn í fyrsta sinn), uppfæra eða eyða gögnum. Notendum er bent á að leita ráða hjá ráðgjöfum Origo þegar verið er að uppfæra eða eyða gögnum. | |
Þegar innlestri er lokið opnast listi með öllum gögnum sem lesin voru inn. Ef að listinn er réttur er aðgerðin kláruð með því að ýta á Vista hnappinn í tækjastikunni. | |
Þegar spjaldið Banki er opnað eftir innlesturinn má sjá að upplýsingarnar sem lesnar voru inn birtast nú í spjaldi viðkomandi starfsmanns |
...