...
Nú er hægt að framkvæma launabreytingar í Kjarna fyrir starfsmenn sem eru á launatöflum sem fylgja kjarasamningum þannig að verið er að færa þá í ákveðna launaflokka og þrep sem búið er að skilgreina í launatöflu. Setja þarf inn stillingu í Gildi með upptalningu á númerum þeirra launataflna sem við á. Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við þær stillingar ef send er beiðni þess efnis á service@origo.is. Sjá frekari upplýsingar í handbók: Launabreytingar á vef
Launabreytingar - Birting mánaðarlauna
Birting mánaðarlauna í launabreytingum var upphaflega þróuð þannig að fjárhæðin kæmi úr föstum liðum. Það var að valda því að hjá þeim sem ekki eru að nota fasta liði kom engin fjárhæð fram fyrir mánaðarlaunin. Virknin hefur verið lagfærð þannig að ef ekkert er skráð í fasta liði fá er fjárhæð mánaðaralauna sótt í grunnlaunaspjald.
Möguleiki á að skilyrða launahóp á útborgun
...