Skjalaskápur er innbyggður í Kjarna þar sem hægt er að halda utan um öll þau skjöl sem tilheyra starfsmanni, umsækjanda, námskeiði eða starfi. Einnig er hægt að hafa hlekk á viðhengi í ytra skjalakerfi.
Til að stofna nýja færslu í spjaldi eru notaðir viðeigandi aðgerðarhnappar í tækjastiku. Sjá nánar hér. Skjöl starfsmanna er hægt að nálgast í gegnum spjaldið Viðhengi í starfsmannatré auk þess sem hægt er að komast í viðhengjaspjaldið í gegnum öll spjöld starfsmannsins.
Þegar komið er inn í spjaldið er hægt að tengja nýtt skjal á starfsmann með því að smella á + hnappinn. Smellt á Sækja skjal og þegar skjalið er sótt þá fyllist sjálfkrafa út í Heiti skjals.
Valin er Tegund skjals eftir því hvernig skjal er verið að vista. Tegund skjals getur t.d. verið starfsferilsskrá, prófskírteini eða ráðningarsamningur.
Sjálfkrafa er fyllt úg svæðið Eigandi skjals = Starfsmaður og Númer eiganda skjals = starfsmannanúmer þess starfsmanns sem unnið er með.
Að lokum er skráð Lýsing, ef við á, og smellt á Stofna og loka.