...
Geymslusvæði aðgengileg eftir flutning yfir í Excel
Geymslusvæðin eru nú áfram aðgengileg í Kjarna ef skýrsla er flutt yfir í Excel en svo er ákveðið að vinna áfram með skýrsluna inni í Kjarna.
Athugið að Í eldri vistuðum listum er möguleiki að þessi geymslusvæði verði sýnileg líka inni í Excel. Það er að sjálfsögðu hægt að eyða efstu línunum út úr Excel skjalinu til þess að losna við þessi svæði en það er líka hægt að setja inn stillingar í listann sem koma í veg fyrir að geymslusvæðin birtist í Excel.
Kveikt er á þessum stillingum með því að smella á hnappinn Stillir
Farið er í Options > OptionsPrint og stillingar PrintColumnHeaders, PrintDataHeaders og PrintUnusedFilterFields settar á False og svo vistað ofan í listann með Geyma sniðmát hnappinum.
Línur í listum séu ekki "merge-aðar" við flutning í Excel
Í Kjarna eru línur í greiningarlistum almennt "merge-aðar" þannig að ef sama gildið tilheyrir mörgum línum þá komi gildið bara í efstu línunni en ekki línunum þar fyrir neðan sem tilheyra þessu sama gildi. Þegar gögnin eru flutt yfir í Excel þá er betra að línurnar haldist ekki "merge-aðar". Stillingu hefur því verið bætt inn í lista þannig að línurnar komi ekki "merge-aðir" þegar listar eru fluttir yfir í Excel.
Athugið að þetta á eingöngu við um nýja lista en ekki lista sem hafa verið vistaðir niður í Möppur. Það er aftur á móti hægt að setja inn stillingu í eldri lista svo þetta virki eins í þeim.
Það er líka til sambærileg stilling sem lætur línur ekki vera "merge-aðar" í listanum inni í Kjarna en það þarf að kveikja sérstaklega á þeirri stillingu.
Bætt villuskilaboð við flutning í Excel ef annað skjal úr Kjarna er þegar opið
...