...
Bókhaldslykli skipulagseiningar bætt við í fyrirtækjalistann
Svæðinu "Bókhaldslykill skipulagseiningar" hefur nú verið bætt við í fyrirtækjalistann (PayRecord.Pivot). Athugið að ef að listinn er vistaður í hliðarvalmynd eða í möppur þarf að sækja hann aftur og vista upp á nýtt til að fá nýja svæðið inn í listann.
...
Þegar tegundin "Óskilgreind" var falin i gjöldum starfsmanna, þá hliðraðist númeraröðin til og gjöld fengu ranga merkingu.
Þessu var ekki breytt til baka, þar sem allir viðskiptavinir hafa nú þegar breytt merkingum handvirkt hjá sér.
Afdregin gjöld sjást ekki á skráningu launa
Ef starfsmaður er með fleiri en eitt launamannanúmer, þá þarf að velja inn launamannanúmer, ef ekki á að nota aðal númer hans.
Gjöd eru aðeins sýnileg í launaskráningu á því launamannanúmeri sem skráð er í gjöldin.
Launamannanúmerið er ekki sýnilegt í gjaldaspjaldi starfsmanns, en hægt að keyra skipunina EmployeeMasterFee.List og velja dálkinn inn í þann Lista til að skipta um númer ef þarf.
Villa við að bakfæra laun
Villa sem kom upp við að bakfæra laun tengdist því að Kjarnai Kjarni var að leita að færslum merktum "Kom frá föstum liðum". Þessi leit var fjarlægð úr aðgerðinni. Allar færslur úr valinni útborgun eru nú bakfærðar án tillits til uppruna þeirra.