...
Yfirfarin var öll dagsetningavirkni í valskjá listanna í Kjarni > Mannauður. Valskjárinn horfir á spjaldið Tenging innan fyrirtækis og listinn birtir starfsmenn út frá þeim skilyrðum sem þar eru sett, t.d. starfsmenn sem eru í starfi í dag, starfsmenn sem voru í fæðingarorlofi í febrúar sl., starfsmenn ákveðinnar skipulagseiningar á ákveðnum degi. Þessi dagsetningaskilyrði á valskjánum horfa aftur á móti ekki á gögnin í viðkomandi lista heldur birtast allar færslur sem skráðar eru í viðkomandi spjald fyrir þá starfsmenn sem uppfylla skilyrðin á valskjánum. Til stendur að bæta við viðbótartakmörkun á valskjáinn sem á þá við um hvert spjald fyrir sig. Þannig væri hægt t.d. að takmarka listann strax við ákveðna tegund náms eða gráðu, ákveðinn kjarasamning eða dagsetningu námskeiðs.
Viðhald gagna í listanum Menntun
Bætt var við svæðum í Select listann Menntun þar sem hægt er að viðhalda og breyta gögnum beint í listanum án þess að þurfa að fara inn í spjald viðkomandi starfsmanns.
...
Þjóðerni bætt við í listana Ráðningarsamningur / Formbréf - grunnur / Tenging innan fyrirtækis
Gildinu þjóðerni hefur verið bætt inn í ofangreinda lista.
...
Ef viðtakendur áminninga erfast á starfsmann frá skipulagseiningu þá fá þeir sendar áminningar á sama hátt og þegar viðtakendur eru skráðir beint á starfsmann í spjaldið Tenging innan fyrirtækis.
Síðasti starfsdagur birtur í spjaldinu
...
Starfsmaður
...
Dagsetning síðasta starfsdags er nú birt í grunnspjaldi starfsmanns. Ef starfsmaður er hættur þá birtist í þessum reit síðasti dagur sem starfsmaður var í starfi m.v. færslur í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis.