Í hliðarvalmynd undir Kjarni > Stofnskrár er aðgengileg tafla fyrir launaramma.
Í Jafnlaunavottun - Launarammi hægt er að stofna launaramma sem er svo tengdur á stöður. Smella á græna plúsinn og skrá inn upphæð frá og upphæð til.
Þegar búið er að stofna launaramma er farið í hliðarvalmynd undir Kjarni > Stofnskrár > Stöður til að tengja launaramma á hverja stöðu.
Launarammi er í skýrslunni Jafnlaunavottun, þar er hægt að sjá hvort laun starfsmanns séu innan launarammans.
Jafnlaunavottun
Dálkalisti
Setja þarf upp dálkalista fyrir jafnlaunavottunarskýrsluna. Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við uppsetningu dálkalistans ef sendur er tölvupóstur á service@origo.is.
Stillingar fyrir jafnlaunavottunarskýrslu
Eftirfarandi stillingar þarf að setja inn í XAP > Gildi tengt jafnlaunavottunarskýrslunni. Ef óskað er eftir aðstoð við þessar stillingarnar frá ráðgjöfum Origo skal senda póst á service@origo.is.
Heiti gildis | Kódi(valkvæmt) | Gildi |
---|---|---|
PayEqualityCertification | Kjarakannanir | Ef sett sem "false" þá er valmöguleikinn í hliðarvalmynd óvirkjaður og falinn |
EqualityCertification.PayListID | Kjarakannanir | Vísir þess dálkalista sem nota á sjálfgefið í valskjá |
EqualityCertification.OrgCompanyID | Kjarakannanir | Vísir þess fyrirtækis sem nota á sjálfgefið í valskjá |