...
Spurt er hvort senda eigi notendum tölvupóst með notandanafni og lykilorði. Það er óþarfi að svara því játandi ef til staðar er tenging við Active Directory þannig starfsmaður skráist sjálfkrafa inn í Kjarna með Windows notandanafninu sínu. Ef sú tenging er aftur á móti ekki til staðar þá er spurningunni svarað játandi. Það er stillingaratriði hvort tölvupósturinn sendist á vinnunetfang eða prívatnetfang ef viðkomandi starfsmaður er ekki með vinnunetfang.
Hægt er að breyta textanum sem sendist út í tölvupósti til nýrra notenda. Textinn er aðgengilegur undir Kjarni > Stofnskrár > Bréf. Bréfið heitir Bréf fyrir stofnun notanda. Ekki er mælt með því að bæta inn í bréfið slóðinni sem Kjarni er sóttur á því ef tölvupósturinn kæmist í rangar hendur þá inniheldur hann allar upplýsingar þannig að sá sem hann kæmist í hendurnar á geti sótt Kjarna og skráð sig inn.