Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

...

Bætt hefur verið við svæði sem sýnir punktafjölda sem námskeið gefur ef upplýsingar eru skráðar í það svæði í Kjarna.  

Skráningar- og afskráningarfrestur á námskeið

APPAIL-5245

Nú er hægt að hafa mismunandi skráningar- og afskráningarfrest fyrir námskeið á starfsmannavef. Grunnstillingarnar í vefnum eru þannig að skráning og afskráning er leyfð þar til námskeið hefst. Nú hefur því verið bætt við stillingarmöguleika þar sem viðskiptavinir geta breytt þessum staðlaða skráningar-/afskráningarfresti. Stillingarnar eru settar inn í XAP > Gildi í kerfisvalmynd Kjarna. Stillingin Employee.Api.Value.CourseDeadlineRegister er fyrir skráningu og stillingin Employee.Api.Value.CourseDeadlineCancel fyrir afskráningu. Í svæðið Gildi fyrir hvora stillingu er skráður skráningar-/afskráningarfresturinn í klukkustundum. Ef einstaka námskeið eiga að hafa annan skráningar-/afskráningarfrest en almennt þá er nú einnig hægt að viðhalda skráningar-/afskráningarfresti á námskeiðunum sjálfum með því að yfirskrifa þann klukkustundafjölda sem birtist út frá almennu stillingunum.