...
Ef notandi tvísmellti óvart á aðgerðina "Reikna laun" þá fór reikningur tvisvar í gang, þessu hefur nú verið breytt þannig að reikningur fer einu sinni af stað þrátt fyrir að tvísmellt sé á þess aðgerð.
Grunnlaunaspjald - samlagning með aukaflokkum og aldurshækkanir
Bætt var við samlagningu fyrir launaflokk, samlagning Grunnlaunaflokks plús aukaflokka flyst nú yfir í svæðið Launaflokkur á grunnlaunaspjaldi bæði þegar færsla er handskráð eða stofnuð með aðgerð fyrir aldurshækkanir.