...
Til að virkja þessa virkni þarf að setja inn eftirfarandi stillingar í XAP → Stillingar → Gildi.
Skipun (Nafn) | Gildi | Skýring |
---|---|---|
User.AutomaticCreate | true | Það er sett "true" í gildi til að kveikja á þessari sjálfvirkni |
User.DefaultXapRole | Hér er sett inn númer þess hlutverks sem starfsmenn eiga að fá þegar þeir eru stofnaðir sem notendur. Hér er oftast sett númer hlutverksins "Starfsmannavefur" | |
QDataRegistration.Email | EmailWork,Email | Hér er skilgreint á hvaða netfang á að senda lykilorð til notanda. EmailWork = Vinnunetfang, Email = Persónulegt netfangt. Í dæminu hér í Gildi sendist tölvupósturinn á vinnunetfang, sé það til, en annars á persónulegt netfang starfsmanns. Þau fyrirtæki sem eru með AD - tengingu setja ekkert netfang í þennan reit. |
XapEmailTemplate.CreateUsers | Hér er sett inn númer þess bréfs sem senda á í tölvupósti á notendur þegar þeir eru stofnaðir sem notendur í Kjarna. Númerið er hægt að finna undir Stofnskrár > Bréf |
...