Starfaflokkun
Til þess að einfalda viðskiptavinum flokkun á jafnverðmætum störfum fyrir jafnlaunavottunina er hægt að skrá Logib flokkunina, ábyrgð, hæfniskröfur og menntun/reynslu, inn á stöður í Kjarna.
...
Setja þarf upp dálkalista fyrir jafnlaunavottunarskýrsluna. Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við uppsetningu dálkalistans ef sendur er tölvupóstur á service@origo.is, en listinn á að innihalda þrá dálka 100% laun, bílastyrk og umbun.
Dálkalistinn er tengdur inn á skýrsluna Jafnlaunagreining BSI í Hliðarvali Kjarni > Skýrslur > Jafnlaunagreining BSI.
Skýrslan Jafnlaunagreining BSI
Skýrslan er uppsett eftir óskum starfsmanna BSI og opnast húná launamannanúmeri, kyni, fæðingarári, starfsaldri í fyrirtæki (námundað í ár), Ábyrgð, Hæfniskröfu og Menntun/reynslu. Þrír síðustu dálkarnir eru síðan sóttir í dálkalistann og sýna 100% laun, bílastyrk og umbun, eftir því hvaða launaliðir eru skráðir í dálkalistann.
Þessu til viðbótar er hægt að draga inn nokkur fleiri svæði sem aðstoða við innanhúss greiningu, sjá táknið "Velja dálka"
Launamannanúmer | Kyn | Fæðingarár | Starfsaldur | Ábyrgð | Hæfniskrafa | Menntun/reynsla | 100% laun | Bílastyrkur | Umbun |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Stillingar fyrir jafnlaunagreingingu BSI
Eftirfarandi stillingar þarf að setja inn í Stillingar > Gildi tengt jafnlaunaskýrslu BSI. Ef óskað er eftir aðstoð við þessar stillingarnar frá ráðgjöfum Origo skal senda póst á service@origo.is.
...