...
- Starfslokadagsetning starfsmanns: Þessi dagsetning er sá dagur sem er seinasti starfsdagur starfsmannanna og verður endadagsetning á núverandi færslu í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis. Dagurinn á eftir verður svo upphafsdagsetning Hættur færslu starfsmannanna í sama spjaldi.
- Ástæða starfsloka: Þarna er valin viðeigandi ástæða starfsloka þessara starfsmanna.
- Síðasti útborgunardagur: Sú dagsetning sem þarna er skráð er sett sem endadagsetning opinnar færslu starfsmannanna í spjaldinu Grunnlaun. Ef ekkert er skráð í þetta svæði þá er grunnlaunaspjaldi starfsmannanna ekki lokað og þeir halda áfram að koma upp í launaskráningu. Setja þarf endadagsetningu á færsluna í grunnlaunaspjaldinu svo hættir starfsmenn komi ekki upp í launaskráningu.
Ferlið er klárað og þá hafa starfsmennirnir verið skráðir hættir í Kjarna.
Ef starfsmaður er með skráða framtíðarfærslu í grunnlaunaspjaldi sem tekur gildi eftir síðasta útborgunardag kemur upp listi yfir þær fæslur. Ekki er hægt að flytja listann yfir í excel en það er hægt að ljóma upp línurnar og afrita með Ctrl+V og flytja þannig yfir í excel.
Ferlið er klárað og þá hafa starfsmennirnir verið skráðir hættir í Kjarna.