...
Ef auglýsing opnaðist í nýjum tab þegar valið var Sækja um og kveikt var á stillingunni fyrir staðfestingu vegna persónuverndarlaga gerðist ekkert ef valið var Hætta við. Því hefur verið breytt að ef valið er Hætta við þá fer umsækjandinn á upphafssíðu umsóknarvefsins með yfirlit yfir allar auglýsingar.
Ferillinn Flytja marga umsækjendur - kyn ekki að uppfærast úr þjóðskrá
Þegar ferillinn Flytja marga umsækjendur var keyrður var kyn ekki að uppfærast út þjóðskrá, einungis nafn. Það hefur verið lagfært. Þetta á við þegar kveikt er á stillingunni að uppfæra kyn úr þjóðskrá.