Um leið og starfsmaður er merktur hættur í Kjarna í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis er hægt að láta hann óvirkjast sem notanda í Kjarna. Það er stillingaratriði hvort starfsmaður eigi að óvirkjast sem notandi við það að hann sé merktur hættur og/eða þegar hann er skráður á starfslokasamning og/eða eftirlaun.
Til að virkja þessa virkni þarf að setja inn eftirfarandi stillingar í Stillingar → Gildi.
...
Ef óskað er eftir því að þessi sjálfvirkni sér virkjuð skal senda póst á service@origo.is.
Gott er að beiðninni fylgi upplýsingar um þær ráðningarmerkingar sem eigi að óvirkja starfsmenn sem notendur
...
(Á eftirlaunum,
...
Á
...
starfslokasamning,
...
Hættur).
Ef starfsmenn eru merktir hættir fram í tímann þá er mælt með því að sett sé í sjálfvirka keyrslu að notendur viðkomandi starfsmanna óvirkist þegar líður að starfslokadagsetningunni. Ráðgjafar Origo geta stillt þessa sjálfvirku keyrslu sé þess óskað og skal beiðni þess efnis berast á netfangið service@origo.is. Einnig er hægt óska eftir aðstoð við ofangreindar stillingar og skal sú beiðni einnig berast á service@origo.is.