Fastir launaliðir - Yfirskrift skipurits sýnilegri í lista
Yfirskrifuð svæði skipurits í föstum liðum koma núna inn í listann Mannauður - Fastir liðir með bláum stöfum svo skýrt er að um yfirskrift er að ræða. Til þess að fá inn yfirskriftina á kostnaðarstöð þarf að draga inn svæðið “Kostnaðarstöð yfirskrift vísir”.
Aldurshækkanir - taka út sjálfgefin gildi
Þegar smellt er á “Hækka” í aðgerðinni Aldurshækkanir er ekki lengur hakað við aðgerðinar fjórar í valskjánum þar sem aðgerðina ætti aldrei að framkvæma nema fyrir eitt val í senn. Nú þarf notandinn því að velja sérstaklega í valskjánum þá aðgerð sem hann ætlar að framkvæma
Gjaldkeralisti - virkni þegar vantar launa- eða orlofsreikninga eða fleiri en einn skráður
Ef launþegi var ekki með skráðan launa- eða orlofsreikning þá voru fjárhæðir ekki að birtast í gjaldkeralista. Það sama átti við ef launþegi var með skráða fleiri en einn reikning þá tvöfölduðust fjárhæðir í gjaldkeralista. Bruðgðist hefur verið við þessu og núna birtast fjárhæðir réttar í gjaldkeralista þrátt fyrir skráningar í bankaspjöld.
Flokkun í starfsmannatré í skráningu launa
Í starfsmannatré í skráningu launa hefur verið bætt flokkuninni “Með færslur”. Þá flokkar tréið starfsmenn eftir því hvort þeir eru með komnir með færslur í útborgun eða ekki. Þannig er auðvelt að sjá hverjir eru ekki með laun í útborgun.
Birting persónuálags á launaseðli þegar stöðum er skipt upp
Gerð hefur verið lagfæring á birtingu persónuálags á launaseðli þegar stöðum er skipt upp með skipuninni PaySlip.UsePositionHeaders. Færslur sem ekki voru með álag voru að koma með sér haus á launaseðlinum en núna er birtingin sótt í grunnlaunaspjald og þá verða ekki til auka línur.
Bæta spjaldinu “Viðverureglur” í starfsmannatré í skráningu launa
Spjaldinu “Viðverureglur” hefur verið bætt inn í starfsmannatré í skráningu launa.