...
Reikniliðir / Hópar | |
---|---|
Hægt er að skrá reikniliði/hópa beint inn á kjarasamninga. Á myndinni sést að ef starfsmaður sem fær greidd laun skv. þessum kjarasamningi, fær greiddan launalið 1000 Mánaðarlaun þá á hann að fá launaliðinn 1100 Bónus í sama hlutfalli. Reikniliðinn sjálfann þarf að stofna sérstaklega og er hann sóttur í fellival í gegnum táknið þrír punktar. Bónus prósentan kemur úr reikniliðnum en einnig er hægt að yfirskrifa hana hér í reitnum Gildi. Reiknihópar virka á sama hátt og reikniliðir en þeir hafa það fram yfir reikniliði að reiknihópur reiknast einnig ofan á reikniliði. |
Réttindi | |
---|---|
Hægt er að skilgreina veikindarétt starfsmanna beint inn á kjarasamning eftir því sem við á. Stillingarnar eru settar inn miðað við þann starfsaldur sem skilgreindur er í viðkomandi samningi. Fyrir veikindarétt vegna barna þarf að setja hak í svæðið "Réttindi barna" |
Ef eyða þarf launatöflu
Eyða launatöflu - eyða fyrst upplýsingum úr flipum | |
---|---|
Ef eyða þarf launatöflu þarf að byrja á því að eyða upplýsingum úr flipanum Þrep, Hlutföll, Fastar, Aldurshækkanir og Reikniliðir/Hópar og smella á vista. Að því loknu er skrifuð eftirfarandi skipun inn í skipanagluggan í neðra vinstra horni: PayTablePeriod.List |
...