Hægt að ráða
...
verknúmerum
Ný verknúmer sem stofnuð voru fengu sjálfkrafa næsta lausa númer. Þessu hefur nú verið breytt þannig að notendur geta nú sjálfir valið hvaða númer ný verknúmer eiga að fá.
Verknúmer á starfsmann í Tenging innan fyrirtækis
Verknúmer er hægt að tengja beint á starfsmann í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis og eru verknúmerasvæðin nú birt á neðri hluta skjásins.
Verknúmerasvæði í listanum Tenging innan fyrirtækis
Verknúmerasvæðin, Verkefni, Verkefni nr. og Verkefni bókhaldslykill, er nú hægt að draga inn í listann Tenging innan fyrirtækis.
Annað stöðuheiti birt í lista yfir stöður
Svæðið Annað stöðuheiti er nú birt í lista yfir stöður þegar hann er keyrður upp og þarf ekki að draga það sérstaklega inn í listann. Þetta getur t.d. verið þægilegt ef tvær stöður eru með sama heiti en annað stöðuheiti á stöðunum er ekki það sama. Þá er hægt að sjá annað stöðuheiti strax þegar tengja á stöðu á starfsmann upp á það hvor þessara tveggja á við um þann starfsmann sem verið er að skrá á stöðu.