Sölustaðir breytt í Mötuneyti og verslanir
Í hliðarvalmynd á Kjarna vef hefur heitinu verið breytt í Mötuneyti og verslanir sem áður var Sölustaðir.
Ákveðnar ráðningarmerkingar ekki birtar í listanum Starfsmenn
Starfsmenn með ráðningarmerkingarnar Hættur, Á starfslokasamningi, Á eftirlaunum, Í áætlun og Óskilgreint eru ekki birtir í listanum Starfsmenn undir Mötuneyti og verslanir > Starfsmenn.
Bætt við möguleika á að handskrá færslur.
Nú er hægt að handskrá færslur og breyta færslum í mötuneyti og verslun fyrir; Starfsmenn, gesti fyrirtækis og ytri viðskiptavini. Jafnframt er hægt að sjá upplýsingar um færsluna, þ..e hver stofnaði hana og hvenær henni var breytt og af hverjum.
Dálkum bætt í lista.
Dálkum með heiti mötuneytis og heiti verslunar var bætt við í listana Færslur í mötuneyti og Færslur í verslun fyrir; Starfsmenn, gesti fyrirtækis og ytri viðskiptavini.
Taka lista út í Excel
Bætt hefur verið við valmöguleika að taka listana Ytri viðskiptavinir og Starfsmenn út í excel.
Færslur í mötuneyti hjá ytri viðskiptavinum sem áður höfðu starfað hjá fyrirtækinu.
Færslur í mötuneyti hjá ytri viðskiptavinum sem höfðu áður starfað hjá fyrirtækinu heldur voru að lenda undir Starfsmenn > Færslur í mötuneyti. Þetta hefur verið lagað.
Svæðum bætt við listann Fyrirtæki undir Ytri viðskiptavinir.
Bætt var við svæðunum Má nota mötuneyti og Má nota verslun í listann Ytri viðskiptavinir > Fyrirtæki.
Upplýsingar úr Tenging innan fyrirtækis m.v. þegar færslan er skráð
Upplýsingar um starfsmenn í Tenging innan fyrirtækis voru að birtast m.v. daginn í dag en ekki þegar færlsan er skráð. Þessu hefur verið breytt og birtast núna upplýsingar úr Tenging innan fyrirtækis m.v. daginn sem færslan er skráð.
Tería kiosk - Breyting á kiosk skjá: Gleymdi korti breytt í Skrá með kennitölu
Valmöguleikanum til að skrá inn kennitölu hefur verið breytt úr Gleymdi korti í Skrá með kennitölu.
Tería kiosk - villa í verslun við handskráðar færslur hjá starfsfólki í tveimur störfum.
Þegar starfsmenn í tveimur störfum skráðu sig inn með kennitölu í kiosk - verslun þá kom upp villa. Þetta hefur verið lagað.
Tería kiosk - hljóð með villumeldingum í kiosk.
Núna gefur kiosk frá sér hljóð til viðbótar við villumeldingu á skjá ef kennitala og/eða kortanúmer starfsmanna finnst ekki í kerfinu. Sækja þarf kiosk aftur til að fá þessa uppfærslu inn; https://kjarni-stable.starfsmenn.is/kiosk/downloads
Tería kiosk - Stilling á tímalengd milli innstimplana
Útbúin var stilling fyrir þá notendur sem þurfa að hafa styttri tíma milli innstimplana í mötuneyti. (Default þarf klukkan að vera komin yfir miðnætti svo hægt sé að skanna kort aftur). Vinsamlegast sendið beiðni á service@origo.is ef nýta á þessa virkni.