...
Núna er hægt að birta Orlofsbeiðnayfirlit í hliðarvalmynd á starfsmannavefnum. Birtir yfirlitð yfirlitið orlofsbeiðnir starfsmannsins og starfsmanna sem eru í sömu skipulagseiningu og starfsmaðurinn. Ef óskað er eftir því að birta Orlofsbeiðnayfirlit á starfsmannavefnum skal senda beiðni á service@origo.is
Orlofsbeiðni - breyting tengd orlofstékki
Breyting var gerð þegar verið er að skrá/samþykkja orlofsbeiðni. Ef kveikt er á orlofstékki þá er núna hægt að skrá orlofsbeiðni/samþykkja orlofsbeiðni þrátt fyrir að vera ekki í Kjarna viðveru (hakað í Kjarni viðvera í vinnutímaspjaldi). Ef starfsmaður er í Kjarni viðvera þá er tékkað á orlofsstöðu þegar skráð er orlofsbeiðni.
Orlofsbeiðni - launalaust leyfi
Núna er hægt að senda inn beiðni fyrir launalausu leyfi. Setja þarf inn stillingu til að tilgreina hvaða tegund stimplunar orlofsbeiðni fyrir launalausu leyfi á að fara á. Ef óskað er eftir að fá þessa virkni inn skal senda beiðni á service@origo.is
Senda orlofsbeiðni þegar flísar fyrir Viðvera - Tímaskráningar og Orlof eru faldar
Ekki var hægt að senda inn orlofsbeiðni ef flísarnar fyrir Viðvera - Tímaskráningar og Orlof voru faldar. Þetta hefur verið lagað.
Breyta orlofsfærslu
Ef kveikt er á orlofstékki og orlofsskráningu var breytt var sú breyting ekki að skila sér alla leið í orlofstékkið, t.d. ef orlofstímum var fækkað í skráningu þá var sú breyting ekki að skila sér í orlofstékkið. Þetta hefur verið lagað.
Mötuneyti og verslanir - merkja færslur
Undir Mötuneyti og verslanir eru tveir listar, annars vegar Starfsmaður og hins vegar Gestir fyrirtækis. Í listanum Starfsmaður var ekki greint á milli tegund færslu, þ.e. hvort færslan væri fyrir starfsmann eða gest starfsmanns og því erfitt að sjá hvaða færslur tilheyrðu gesti starfsmanns. Búið er að bæta við tegund færslu í listann.
Starfsmannavefur - Birta launamiða í sér flís
Nú er hægt er að birta launamiða á starfsmannavef. Kveikja þarf sérstaklega á þeirri virkni í vefgildi og bæta inn línu í hlutverkið fyrir starfsmannavefinn.
Hægt er að senda beiðni á service@origo.is til að óska eftir að virkja þessa birtingu.
Dagpeningabeiðni - bæta við textasvæði fyrir athugasemdir
Notendur geta núna skráð athugasemdir þegar þeir stofna dagpeningabeiðnir á starfsmannavef. Skráðar athugasemdir birtast svo stjónendum á Kjarna vef.
Stilling fyrir tímabil lagfærð
Ef stilling fyrir tímabil var tóm eða hafði gildið 1 var tímabilið ekki alltaf að koma rétt á fyrir viðveru og mötneyti. Þetta hefur verið lagað.
Texti lagfærður þegar enginn hlutur í láni var skráður
Þegar enginn hlutur í láni var skráður kom texti um að engin hæfni væri skráð. Þetta hefur verið lagað og núna koma skilaboð Enginn hlutur í láni skráður.