Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Hér má nálgast upplýsingar um hvernig stofna á notanda í Kjarna og sú aðgerð miðuð við það ef verið er að stofna einn stakan notanda. 

Í einhverjum tilvikum getur þurft að stofna marga notendur í einu, t.d. fyrir notkun á starfsmannavef, og þá er fyrrnefnd aðgerð ekki nægilega hentug. Það var því útbúin ný aðgerð sem gerir notanda kleift að stofna marga notendur út frá listanum Starfsmenn sem er aðgengilegur í hliðarvalmynd undir Kjarni > Mannauður. Það er einnig hægt að nota þessa aðgerð til þess að stofna einn notanda.

Áður en notendur eru stofnaðir þarf að tryggja að þeir séu með skráð notandanafn og netfang. Það er einfalt að sjá í listanum Starfsmenn. Ef notandanafn og/eða netfang er ekki skráð þá er hægt að tvísmella á viðkomandi starfsmann (ef notandi er í venjulegum lista), skrá viðeigandi upplýsingar og vista færsluna, eða (ef notandi er í .Select lista) slá viðeigandi upplýsingar í tilheyrandi svæði og vista listann. 

Þegar tryggt hefur verið að notendanöfn og netföng séu skráð á þá starfsmenn sem stofna á sem notendur eru viðeigandi línur (starfsmenn) valdar í listanum og smellt á hnappinn Stofna notendur

Image Added

Viðeigandi hlutverk er fundið og valið með því að tvísmella á það eða smella á það og svo á hnappinn Velja

Image Added

Spurt er hvort senda eigi notendum tölvupóst með notandanafni og lykilorði. Það er óþarfi að svara því játandi ef til staðar er SSO tenging þannig að starfsmaður skráist sjálfkrafa inn í Kjarna með Windows notandanafninu sínu. Ef sú tenging er aftur á móti ekki til staðar þá er spurningunni svarað játandi. Það er stillingaratriði hvort tölvupósturinn sendist á vinnunetfang eða prívatnetfang ef viðkomandi starfsmaður er ekki með vinnunetfang. 

Image Added

Hægt er að breyta textanum sem sendist út í tölvupósti til nýrra notenda. Textinn er aðgengilegur undir Kjarni > Stofnskrár > Bréf. Bréfið heitir Bréf fyrir stofnun notanda. Ekki er mælt með því að bæta inn í bréfið slóðinni sem Kjarni er sóttur á því ef tölvupósturinn kæmist í rangar hendur þá inniheldur hann allar upplýsingar þannig að sá sem hann kæmist í hendurnar á geti sótt Kjarna og skráð sig inn.