...
Aðgerðarsagan sem kemur upp eftir að laun hafa verið bókuð opnast núna útsprengd ef að bókunin inniheldur villuboð.
...
Þegar skráð voru laun á launaliðinn mánaðrlaun veikndi (hjá þeim sem nota slíka skráningu) voru veikindatímarnir að birtast sem hlutfall í Kjararannsóknar skýrslunni en ekki sem tímar.
Þetta hefur nú verið lagfært.
Kjararannsókarskýrsla - heiti á vistaðri skrá
Kjararannsóknarskýrslan er keyrð upp fyrir ákveðin mánuð og þegar valið er að “vista skrá” kemur númer valins mánaðar í skráarheiti. Ef að fyrsta færslan í skýrslunni var leiðréttingarfærsla með dagsetnignu aftur í tímann þá var ekki að koma rétt mánaðarnúmer þegar skýrslan var vistuð. Þetta hefur verið lagfært og nafnið á skýrslunni ræðst nú alltaf útfrá völdum mánuði.
Tvær nýjar reiknireglur orlofs
Bætt hefur verið við tveimur nýjum reiknireglum orlofs til að meðhöndla tímavinnumenn sem ávinna sér ekki orlofstíma en eiga að fá greitt orlof á yfirvinnu. Tegundirnar eru:
Dagvinnu ekki safnað, rest í banka og Dagvinnu ekki safnað, rest greitt.
Launaáætlun - Tenging innan fyrirtækis, 2 færslur virkar á sama tímabili
Ef starfsmaður var með 2 færslur virkar á sama tímabil tvöfölduðust færslur sem sóttar voru í fasta liði ef þeir hafa merkinguna “Einingar elta daga”. Gerð var lagfæring á þessu svo nú hlutfallast færslur eftir dagsetningum í Teningingu innan fyrirtækis.
Loka áætlun - aðgerð virkjuð
Aðgerðin PayBudgetClose.Action hefur verið virkjuð í Kjarna þannig að nú er hægt að smella á “Loka” í áætlunarhring til að loka valinni áætlun.
...
Heildarlaun - skipta upp launalið 9001 á skipulagseiningu, kostnaðastöð eða verk
Ef að starfsmaður fær laun á aðra skipulagseiningu, kostnaðarstöð eða verk en hann er skráður á er nú hægt að skipta heildarlaunum (launaliður 9001) niður eftir launaskráningu.
Setja þarf skipun í Stillingar - Gildi til að virkja skiptinguna, sendið beiðni á service@origo.is ef þið óskið eftir slýkri virkni.
Þar sem launliður 9001 er notaður í samþykkt laun til að sýna heildar kostnað launa hefur þessi breyting þau áhrif að laun sem skráð eru með öðrum skilyrðum verða sýnileg á þeirri skipulagseiningu sem þau tilheyra.
Nýtt verknúmersbókunarsvæði - ytra verk
Útbúið hefur verið nýtt verknúmersbókunarsvæði vegna ytra verks. Í þetta svæði er hægt að skrá verknúmer úr ytra kerfi sem ekki eru til í Kjarna.