...
Nú er hægt að framkvæma launabreytingar í Kjarna fyrir starfsmenn sem eru á launatöflum sem fylgja kjarasamningum þannig að verið er að færa þá í ákveðna launaflokka og þrep sem búið er að skilgreina í launatöflu. Setja þarf inn stillingu í Gildi með upptalningu á númerum þeirra launataflna sem við á. Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við þær stillingar ef send er beiðni þess efnis á service@origo.is. Sjá frekari upplýsingar í handbók: Launabreytingar á vef
Launabreytingar - Birting mánaðarlauna
Birting mánaðarlauna í launabreytingum var upphaflega þróuð þannig að fjárhæðin kæmi úr föstum liðum. Það var að valda því að hjá þeim sem ekki eru að nota fasta liði kom engin fjárhæð fram fyrir mánaðarlaunin. Virknin hefur verið lagfærð þannig að ef ekkert er skráð í fasta liði fá er fjárhæð mánaðaralauna sótt í grunnlaunaspjald.
Launabreytingar - Virkni þegar beiðni er samþykkt
Þeir sem ekki eru að nota rafrænar undirritanir geta núna sent tölvupóst á starfsmenn þegar launabreyting er samþykkt. Sjá nánari upplýsingar í handbók: Launabreytingar á vef
Möguleiki á að skilyrða launahóp á útborgun
...
Í dálknum “Birting mánaðarlauna miðað við 100%” hefur verið stuðst við útreikning útfrá greiddum stöðugildum. Sá útreikningur hefur valdið vandræðum hjá viðskiptavinum sem reikna stöðugildi af fleirri fleiri launaliðum en dagvinnuliðum. Útbúin hefur verið stilling til að breyta virkni þessa dálks þannig að hann sækji sæki fjárhæðirnar í grunnlaunaspjöld starfsmanna í stað uppreiknings útfrá stöðugildum. Þeir sem vilja breyta virkni dálkisns geta því sent beiðni á service@origo.is og óskað eftir að skipunin verði virkjuð.
...