...
Sjá nánar hér: Hliðarvalmynd
Skýrsla fyrir kjararannsókn - villuskilaboð
Villuskilaboð voru að koma ef starf var ekki skráð í tengingum innan fyrirtækis, þessu hefur nú verið breytt þannig að þessi villiskilaboð koma ekki lengur.
Launaseðlar - Afhendingamáti - Email
Nú er hægt að merkja hvort launaseðill starfsmanns fari í netbanka eða sendur í bréfpósti. Sjálfgefið gildi er að launaseðlar fari í netbanka, það þarf því bara að breyta hjá þeim starfsmönnum sem EKKI eiga að fá launaseðla í netbanka.
Einnig er nú hægt að taka út marga launaseðla fyrir ákveðinn starfsmann og senda í tölvupósti sem eitt pdf skjal.
Valskjár hafa breyst með tilliti til þessara breytinga.
Leiðbeiningar vegna launaseðla hafa verið uppfærðar, mæli með að allir renni yfir þessar leiðbeiningar. Launaseðlar
Valskjáir fyrir launalista
Ef öll skilyrði eru tóm í valskjá er ekki hægt að keyra upp skýrsluna, það verður alltaf að skrá eitthvað gildi í valskjá. Þetta er gert til þess að óvart sé ekki verið að keyra upp launaskýrslu fyrir allar útborganir í kerfinu.
Fyrirtækjalisti í hliðarvalmynd með nýjum valskjá
Fyrirtækjalisti í hliðarvalmynd til vinstri undir skýrslur hefur fengið nýjan valskjá, sjá nánar í handbók Valskjár fyrir launalista - Fyrirtækjalisti
Nýr valskjár fyrir dálkalista
Í nýjum valskjá er hægt að vera með samanburð sem sýnir mismun í krónum eða hlutfalli fyrir allt að fjórar útborganir. Sjá nánar í handbók Valskjár fyrir launalista - Dálkalisti
Bankaskrá fyrir útborguð laun
Ef færslufjöldi á höfuðbók var meiri en 999 færslur þá færðist upphæða svæðið til þannig að ekki var hægt að lesa skránna inn hjá Landsbankanum, þetta hefur nú verið lagað þannig að nú má færslufjöldi vera 9999.