Þjóðerni bætt við í listana Ráðningarsamningur / Formbréf - grunnur / Tenging innan fyrirtækis
Gildinu þjóðerni hefur verið bætt inn í ofangreinda lista.
Dagsetningar í valskjá
APPAIL-3281, APPAIL-3286, APPAIL-3285, APPAIL-3282, APPAIL-3303, APPAIL-3283
Yfirfarin var öll dagsetningavirkni í valskjá listanna í Kjarni > Mannauður. Valskjárinn horfir á spjaldið Tenging innan fyrirtækis og listinn birtir starfsmenn út frá þeim skilyrðum sem þar eru sett, t.d. starfsmenn sem eru í starfi í dag, starfsmenn sem voru í fæðingarorlofi í febrúar sl., starfsmenn ákveðinnar skipulagseiningar á ákveðnum degi. Þessi dagsetningaskilyrði á valskjánum horfa aftur á móti ekki á gögnin í viðkomandi lista heldur birtast allar færslur sem skráðar eru í viðkomandi spjald fyrir þá starfsmenn sem uppfylla skilyrðin á valskjánum. Til stendur að bæta við viðbótartakmörkun á valskjáinn sem á þá við um hvert spjald fyrir sig. Þannig væri hægt t.d. að takmarka listann strax við ákveðna tegund náms eða gráðu, ákveðinn kjarasamning eða dagsetningu námskeiðs.
Viðhald gagna í listanum Menntun
Bætt var við svæðum í Select listann Menntun þar sem hægt er að viðhalda og breyta gögnum beint í listanum án þess að þurfa að fara inn í spjald viðkomandi starfsmanns.
Vartölupróf á kennitölusvæði
Þegar kennitala er ekki til í þjóðskrá kemur kerfið nú upp með villu um að kennitala sé ekki til eða að hún sé ekki lögleg.
Þjóðerni bætt við í listana Ráðningarsamningur / Formbréf - grunnur / Tenging innan fyrirtækis
Gildinu þjóðerni hefur verið bætt inn í ofangreinda lista.
Vöntunarlisti - viðbótarsvæði
...
Listinn Til minnis á helluvalmynd
Listinn Til minnis á helluvalmynd birtir núna bara þær færslur þar sem hakað er við Sýna. Þetta er hægt að stilla öðruvísi hjá viðskiptavinum sé þess óskað. Ráðgjafar Applicon Origo geta þá leiðbeint varðandi það.
Áminningar ef viðtakendur erfast frá skipulagseiningu
Ef viðtakendur áminninga erfast á starfsmann frá skipulagseiningu þá fá þeir sendar áminningar á sama hátt og þegar viðtakendur eru skráðir beint á starfsmann í spjaldið Tenging innan fyrirtækis.
Síðasti starfsdagur birtur í spjaldinu Starfsmaður
Dagsetning síðasta starfsdags er nú birt í grunnspjaldi starfsmanns. Ef starfsmaður er hættur þá birtist í þessum reit síðasti dagur sem starfsmaður var í starfi m.v. færslur í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis.