Table of Contents | ||||
---|---|---|---|---|
|
Reikna orlofsuppbót | |
---|---|
Þegar kemur að greiðslu orlofsuppbótar - en hana ber að greiða í síðasta lagi 15. júní ár hvert - þá er byrjað á því að sækja ávinnslu orlofsuppbótar 9272 og ávinnslu orlofsuppbótar tímavinnu 9276 hjá þeim sem hana nota. Athugið að ef orlofsuppbót er ekki greidd við starfslok, þá þarf að greiða öllum í maí ár hvert. Í þeim tilvikum þarf að breyta gildir til dagsetningum grunnlaunaspjalda þeirra starfsmanna sem eru hættir þannig að þau séu í gildi til loka maí yfirstandandi árs. Þetta þarf að gera áður en ávinnslur eru sóttar. | |
Ef farið er í Ávinnslur í ávinnsluhring er hægt að sjá ávinnslutímabil orlofsuppbótar | |
Orlofsuppbótin er |
með ávinnslutímabilið |
“Orlofstímabil” og dagsetningin er frá 1.maí til 30.apríl | |
Til þess að sækja ávinnslur allra starfsmanna er smellt á Sækja í Ávinnsluhringnum. | |
Athugið sérstaklega ef ávinnslutímabilið er 2 ár t.d. 1.5.2022 - 30.4.2023, að bæði árin séu skráð í Ár. Ef nota á núverandi útborgun sem hluta af grunni til útreiknings á réttindum til orlofsuppbótar þá er hakað við Sækja í skráningu í valskjánum sem upp kemur. Athugið að til dagsetning sé örugglega rétt. Að lokum er smellt á Sækja. | |
Ávinnslan er skoðuð í Skrá | |
Greiða orlofsuppbót | |
Til að senda skuldbindinguna yfir í launaútborgun til greiðslu, er farið í Skrá og þar valið aðgerðahjólið í tækjaslánni og velja þar “Flytja ávinnslu í skráningu”. | |
Þar er starfsmannanúmeri eytt úr svæðinu “Launamenn”og númer launaliðar slegið inn í reitinn “Launaliðir”. Áður en smellt er á Flytja þarf að velja hvort geyma eigi niðurstöðu. Til þess að flytja færslur |
yfir þarf að velja annað hvort "Geyma ef engar villur" eða "Geyma þrátt fyrir villur". Við mælum með seinni valkostinum og er hann sjálfgefinn. Athugið að rétt útborgun sé valin í Útborgun. Hakið í "Yfirskrifa tímabil" kemur sjálfvalið og skiptir það tímabili uppbóta eftir greiðsluformi launamanns í útborgun og setur bókunardag samkvæmt skilgreiningu útborgunar. Ef hakið er tekið úr koma uppbæturnar í launaskráningu með sömu dagsetningum og er í ávinnsluskráningu en þar eru allar færslur á tímabili vegna eftirá greiðsluforms og eftirá bókunarmánuði. Bókunarmánuður í launaskráningu verður alltaf samkvæmt greiðsluformi launamanns í útborgun. Ef senda þarf skuldbindingu aftur til greiðslu er hakað í "Eyða |
skuldbindingu fyrir" til að eyða út áður sendum færslum. Ef bæði er unnið með orlofsuppbætur fyrir mánaðarlaun og tímalaun, þá þarf að smella á plúsinn við svæðið Launaliðir og slá inn bæði 580 Orlofsuppbót og 581 Orlofsuppbót tímalaun, eða önnur þau númer sem eru í notkun hjá viðskiptavini. Þegar búið er að flytja orlofsuppbótina úr ávinnslum er hægt að skoða færslurnar í launaskráningu þeirrar útborgunar sem valið var að flytja þær í. | |
Þegar búið er að greiða orlofsuppbótina, þarf að fara í Ávinnslur í ávinnsluhring og breyta ávinnslutímabili orlofsuppbótar fyrir næsta orlofsár. |