...
Hægt að stofna gátlista á hætta starfsmenn.
Ekki var hægt að stofna gátlista á hættan starfsmann og hættir starfsmenn voru ekki að birtast í listanum Tengdir gátlistar. Þetta hefur verið lagað.
Eyða gátlista
Núna er hægt að eyða gátlista þótt búið sé að svara honum.
Gátlistavirkni í Teymið mitt
Virkni á flís fyrir gátlista í Teymið mitt var uppfærð til samræmis við virkni í tengdum gátlistum.
Ljúka gátlista þrátt fyrir útistandandi atriði
Núna er hægt að ljúka gátlista þrátt fyrir útistandandi atriði. Áður þurfti að haka í öll atriðin til að ljúka gátlista en búið er að bæta við hnappi Ljúka til að ljúka gátlista án þess að búið sé að haka við öll atriðin.
Tengja fleiri umsjónaraðila á gátlista
Núna er hægt að tengja fleiri umsjónaraðila á gátlista með því að velja þá inn í reitinn Aðgangur að gátlista.
Vefur náði ekki að lesa netfang ábyrgðaraðila á takmörkuðum aðgangi
Ef notendur með takmarkaðan aðgang voru að tengja gátlista á starfsmenn þá náðu vefir, í einhverjum tilvikum, ekki að lesa netfang ábyrgðaraðila og þar af leiðandi sendist ekki tölvupóstur. Þetta hefur verið lagað.
Gátlista breytt í client hefur áhrif á svör á vef
Ef gátlista, sem stofnaður var á vef, var breytt í client hafði það áhrif á svör gátlistans. Þetta hefur verið lagað.