Starfsafmæli í upphafsvalmynd birti hætta starfsmenn
Ef starfsafmæli er birt í upphafsvalmynd birtust hættir starfsmenn í þeim lista. Þetta hefur verið lagað.
Hlutlaus kynskráning
Bætt hefur verið við valmöguleikanum um hlutlausa kynskráningu.
Starfsaldur reiknast ekki rétt þegar starfsmaður er í starfi í dag og skráð er færsla fram í tímann í Tenging innan fyrirtækis
Í útgáfu 19.4.1 var lagfært að starfsaldur reiknist rétt þegar starfsmaður er stofnaður fram í tímann, þ.e. að starfsaldur byrji ekki að telja fyrr en hann hefur störf. Við þá lagfæringu kom upp að ef starfsmaður er í starfi í dag en á færslu skráða fram í tímann var starfsaldur 0 hjá viðkomandi. Þetta hefur verið lagað.
Ráðningarmerking bætt við í skýrsluna Ráðningarsamningur
Ráðningarmerking hefur verið bætt við í skýrsluna Ráðningarsamningur.
Staðsetningar - nýtt svæði fyrir Sími landakóði
Í Staðsetningar undir Stofnskrár var bætt við nýju svæði fyrir Sími landakóði.