Staðsetningar - nýtt svæði fyrir Sími landakóði – einnig til sem val í listanum
...
Í Staðsetningar undir Stofnskrár var bætt við nýju svæði fyrir Sími landakóði í útgáfu 19.5.2. Þetta svæði er nú einnig til sem val inni í listanum.
Póstnúmeralistinn uppfærður
Búið er að uppfæra póstnúmeralistann samkv. breytingum hjá Póstinum. Sjá hér.
Birta notendanafn í starfsmanna- og launamannatré
Núna er hægt að birta notendnafn starfsmanns í starfsmanna- og launamannatrénu og er hægt að leita eftir því. Setja þarf inn stillingu til að birta notendnafn í starfsmanna- og launamannatrénu. Senda skal beiðni á service@origo.is ef óskað er eftir að fá inn þessa viðbót.
Kostnaðarstöð yfirskrifuð á stöðu birtist nú í listanum Tenging innan fyrirtækis
Ef kostnaðarstöð var yfirskrifuð á stöðu, þ.e. með aðra kostnaðarstöð en þá sem skráð er á skipulagseininguna var yfirskrifaða kostnaðarstöðin ekki að birtast í listanum Tenging innan fyrirtækis heldur sú kostnaðarstöð sem skráð var á skipulagseininguna.
Þessu hefur verið breytt þannig að ef kostnaðarstöð er yfirskrifuð á stöðu þá er það yfirskrifaða kostnaðarstöðin sem er birt í listanum Tenging innan fyrirtækis.
Listinn Jafnlaunavottun - Viðmið - Stöður að skila villu
Listinn Jafnlaunavottun - Viðmið - Stöður var að skila villu og ekki hægt að opna listann. Þetta hefur verið lagað.
Komu villuskilaboð þegar valið var að stofna nýja Flokkun
Þegar valið var að stofna nýja flokkun undir Stofnskrár > Flokkun kom upp villa. Þrátt fyrir villuna var hægt að stofna flokkun. Þetta hefur verið lagað og villan fjarlægð.
Hægt að breyta heiti fyrir Svæði og Undirsvæði
Núna er hægt að breyta heitinu á flokkuninni Svæði og Undirsvæði. Ef óskað er eftir því að fá þessa breytingu inn þarf að senda beiðni á service@origo.is með upplýsingum hvaða heiti eigi að koma í staðinn fyrir Svæði og Undirsvæði.
Ný svæði í spjaldinu Starfsmaður
Bætt hefur verið við nýjum svæðum í spjaldið Starfsmaður. Í flipanum Þjóðerni var bætt við svæðinu Fæðingarstaður. Í flipanum Nánasti aðstandandi var bætt við svæðunum Heimilisfang, Netfang og Farsími.
Skýrslan Starfsmannavelta
Skýrslan Starfsmannavelta var ekki að birta niðurstöður ef hlutverk notanda var takmarkað á ákveðin fyrirtæki. Þetta hefur verið lagað. Auk þess var handbókin uppfærð, sjá hér: Starfsmannavelta