Reiknað stöðugildi þegar starfshlutfall er núll
...
Ef starfsmaður átti inni eldri ónýttan persónuafslátt var sú upphæð ekki að koma með til útreiknings á 75% reglunni, þessu hefur nú verið breytt þannig að eldri afsláttur kemur með til útreiknings. 75% reglan er ( heildarlaun * 75% ) - ( meðlag + iðgjald í almennan sjóð + greidd staðgreiðsla ).
Einingar elta daga - greidd stöðugildi á ekki vera stærra en 1,00
Reiknivélin passar nú að launaliðir sem eru merktir einingar elta daga verði ekki með meira en 1,00 í Tímaeining í skráningu launa þegar launatímabili er skipt upp á milli launaliða. Þetta á við um þá launaliði sem eru í stofnupplýsingum merktir sem Eining, hakað við Stöðugildi og Einingar elta daga. T.d ef Mánaðarlaun er frá 1.10.2018 - 15.10.2018 og Mánaðarlaun veikindi frá 16.10.2018 - 31.10.2018 er passað að þessir tveir launaliðir verði samtals ekki með meira en 1,00 í Tímaeining.
...
Eftirtöldum svæðum hefur verið bætt inn í skýrsluna:
Starfsaldur launa ár, Starfsaldur ár-mm-dd, Starfsaldur launa ár-mm-dd og Ráðningardagsetning.
Skattaskilgreining - stilling nýtist fyrir öll fyrirtæki
Ef ekki er til skattaskilgreining fyrir fyrirtæki þá er stilling fyrirtækis 1 notuð. Hægt er setja inn stillingu í XAP Stillingar Gildi ef aðalstilling er fyrir annað fyrirtæki en númer 1 "Poet.PayTaxSteps.OrgCompanyID" númer fyrirtækis er þá sett í Gildi.
Gjaldheimtugjöld - Þegar greitt
...
Aðgerðarglugginn sem opnast þegar launamiðar eru undirbúnir lokast núna þegar aðgerð er lokið.
Kjararannsókn - Nýir starfaflokkar
Það eru 13 nýir starfaflokkar komnir hjá kjarannsókn sem bæta þarf inn í Kjarna
Til að skrá þá inn í Kjarna þarf keyra upp skipun:
PayResearch.Select
og bæta eftirtöldum flokkum inn í töfluna:
1210.64 aðstoðarforstöðumaður
1232.06 mannauðsstjóri
2331.21 leiðbeinandi 3 í grunnskóla
2331.22 leiðbeinandi 4 í grunnskóla
2419.26 lánastjóri í banka
2429.16 persónuverndarfulltrúi
3418.06 ráðgjafi í banka
3418.07 viðskiptastjóri í banka
4142.04 póstafgreiðslumaður
4222.26 hraðþjónustufulltrúi í banka
5131.32 almennur starfsmaður í grunnskóla
5131.33 háskólamenntaður starfsmaður A
5131.34 háskólamenntaður starfsmaður B
Ef lesa á inn starfsheitin á skipunin að vera
PayResearch.Import og *stofna *færslurnar sem eru í meðfylgjandi skjali "Ný starfaheiti innlestur"