...
Í útgáfu 23.2.1 var bætt við rafrænni undirritun fyrir launabreytingar. Aftur á móti gleymdist að bæta við röðun undirritenda sem kom í sömu útgáfu fyrir rafræn skjöl við rafræna undirritun fyrir launabreytingar. Því hefur nú verið bætt við.
Áminning fyrir undirritun sem er ólokið
Núna er hægt að senda áminningu á undirritendur sem ekki hafa lokið undirritun á skjali. Athugið að ef sá sem er númer 1 í röðinni hefur ekki lokið sinni undirritun, og þ.a.l. hefur sá sem er númer 2 í röðinni ekki fengið tölvupóst um undirritun, þá fá báðir póst með áminningu um að undirrita skjal. Ef óskað er eftir að virkja þessa áminningu skal senda beiðni á service@origo.is
Undirskriftir - síu og leit bætt við lista
Búið er að bæta við leit og síu á dálkana í listanum Undirskriftir.