...
Nú er hægt að senda áminningar við upphaf starfs út frá CreateDate (stofnað þann). Þessar áminningar er hægt að senda daginn eftir (eða seinna) eftir að starfsmaður er stofnaður í Kjarna. Ekki er hægt að láta þessar áminningar sendast samdægurs (sama dag og starfsmaður er stofnaður).
Mannauður > Orlof - Svæðum bætt við listann
Í listann Mannauður > Orlof (EmployeeDetailHoliday.List) var bætt við svæðum (dálkum) svo hægt sé að draga þau inn í listann. Þessi nýju svæði eru; Flokkun númer, Flokkun nafn og Starfshlutfall.
Mannauður > Stéttarfélög - Svæðum bætt við listann
Í listann Mannauður > Stéttarfélög var bætt við svæðum (dálkum) svo hægt sé að draga þau inn í listann. Þessi nýju svæði eru; Farsími, Vinnunetfang, Starf, Starf nr. Launafulltrúi, Launafulltrúi nr. og Erfður launafulltrúi.
Aðgangur að flipanum Launakerfi í starfsmannaspjaldi
APPAIL-10256
Viðbótaraðgangsstýringu hefur verið bætt við fyrir flipann Launakerfi í starfsmannaspjaldi. Þeir viðskiptavinir sem nota þennan flipa þurfa því að senda póst á service@origo.is og tiltaka í hvaða aðgangshlutverk bæta eigi þessum aðgangi í.
Launafulltrúi erfður af skipulagseiningu
Ef launafulltrúi, sem skráður er á starfsmann, er erfður af skipulagseiningu þá kemur hann í dálkinn Erfður launafulltrúi í listunum Starfsmenn og Tenging innan fyrirtækis. Ef launafulltrúi er skráður á starfsmann í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis þá kemur hann í dálkinn Launafulltrúi í listunum Starfsmenn og Tenging innan fyrirtækis. Hafa þarf því báða þessa dálka í listunum ef verið er að nota þessa flokkun fyrir starfsmenn.
Sama notendanafn sett á annan starfsmann - athugasemd
Ef sama notendanafn er sett á annan starfsmann í starfsmannaspjaldi kemur athugasemd þess efnis. Aftur á móti var þessi athugasemd ekki að koma þegar notendanafn var sett á starfsmann í gegnum starfsmannalistann > Select lista. Þetta hefur verið lagað og núna kemur athugasemdin líka þar.
Skattkort - Nafni á spjaldinu skattkort hefur verið breytt í persónuafsláttur
Nafni á spjaldinu skattkort hefur verið breytt í persónuafsláttur, bæði spjaldinu sjálfu og einnig ef listi yfir alla starfsmenn er skoðaður í Mannauður>Persónuafsláttur.