Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

Ný gjaldategund fyrir stéttarfélag

APPAIL-6723

Búin var til ný gjaldategund J sem á að nota fyrir félagsmannasjóð. Bókstafur gjaldategunda kemur fram í txt skrá og vefskilum skilagreina

Líkamsræktarstyrkur á starfsmannavef

APPAIL-6538

Gerðar voru breytingar í tengslum við líkamsræktarstyrk á starfsmannavef. Eftir þessar breytingar er hægt að hafa mögulega upphæð skilgreinda í stillitöflu og starfsmaður skráir inn þá upphæð sem sótt er um í hvert skipti ásamt því að setja inn kvittun, eins og áður var. Starfsmannavefurinn stoppar starfsmanninn af ef skráð er inn hærri upphæð en starfsmaður á eftir ónýtta. Þegar sótt er um líkamsræktarstyrk á þennan hátt í gegnum starfsmannavefinn (Ef tegund styrks = Líkamsræktarstyrkur er notuð) þá vistast niður færsla í spjaldið Fastir launaliðir. Sjá , sú færsla er þá með upphafs- og endadag sem fyrsta dag næsta mánaðar og þann launalið sem skilgreindur er í dálkinum Launaliður nr. Launaliðinn þarf að stilla sem eftirá launalið (í Tímabil og Greiðsluform) til þess að allt virki rétt. Sjá nánari upplýsingar hér um þær stillingar sem þarf að setja inn til þess að virkja þetta. Ef aðstoð óskast við að setja inn viðeigandi stillingar skal póstur sendast á service@origo.is.

Fyrirsögn á líkamsræktar- og samgöngustyrk á starfsmannavef

APPAIL-6736

Gerð var smávægileg breyting á útliti fyrirsagna líkamsræktar- og samgöngustyrks.

Starfsmannavefur - merking á námskeiði sem þegar er hafið

APPAIL-6737

Gerð var lagfæring á merkingu á námskeiði sem þegar er hafið. Þar kom fyrir mistök merkingin Á morgun en þetta hefur nú verið lagfært þannig að þar kemur merkingin Hafið.

Kjarni > SAP tenging - viðbætur

APPAIL-6733

Viðbótarsvæðum var bætt við Kjarni > SAP tenginguna. Þeir viðskiptavinir sem nýta þá tengingu geta óskað eftir frekari upplýsingum með því að senda póst á service@origo.is.

Tölvupóstur sendur úr samþykkt launa

Samþykkt launa - tölvupóstur til samþykkjenda

APPAIL-6724

Það brotnaði hjá okkur í síðustu útgáfu að hægt væri að senda tölvupóst úr samþykkt launa, þetta hefur nú verið lagað.