...
Lagfæring hefur verið gerð þannig að þegar starfsmaður skráir sig á námskeið á starfsmannavef þá sendist út fundarboð.
Frammistöðumat og námskeiðsmat - ítarlegri upplýsingar
Það var hægt að skrá ítarlegri upplýsingar fyrir spurningar í svæðið Lýsing og birtust þessar upplýsingar á frammistöðumati og námskeiðsmati. Sambærileg virkni hefur nú verið útfærð fyrir spurningahópa í frammistöðumati og námskeiðsmati. Einnig hefur verið bætt inn þeim mögulega að hægt er að forma þessar ítarlegri upplýsingar með html tögum.
Frammistöðumat og námskeiðsmat - textabreytingar og þýðingar
...
Textar þessara hnappa voru einnig alltaf á íslensku þrátt fyrir að notandi væri skráður inn á vefinn á ensku. Þessu hefur nú verið breytt þannig að hnapparnir þýðast yfir á ensku eins og aðrir textar á vefnum.
Nánasti aðstandandi - þýðingar
Textarnir fyrir upplýsingar um nánasta aðstandanda voru alltaf á ensku þrátt fyrir að notandi væri skráður inn á íslensku. Þessu hefur nú verið breytt þannig að textarnir séu í samræmi við það tungumál sem notandi er skráður inn á.
Útlitsbreytingar
Smávægilegar útlitsbreytingar hafa verið gerðar á starfsmannavefnum, m.a. til að aðskilja betur flipana Samskipti, Nánasti aðstandandi og Börn, auk breytinga á hnöppum við skráningu/viðhald á upplýsingum.