Í hliðarvalmynd undir Kjarni > Stofnskrár eru aðgengilegar töflur fyrir yfir- og undirviðmið auk lista fyrir skráningu þrepa fyrir hvert undirviðmið á stöður.
Í Jafnlaunavottun - Yfirviðmið er hægt að stofna þau yfirviðmið sem notuð eru.Í
Yfirviðmiðin eru stofnuð fyrst með því að smella á græna plúsinn (viðskiptavinur ræður fjölda)
Jafnlaunavottun - Undirviðmið
Svo eru svo stofnuð undirviðmið fyrir hvert yfirviðmið og þau tengd á viðkomandi yfirviðmið (viðskiptavinur ræður fjölda).
Á hvert undirviðmið er svo hægt að skrá þrep. Þessi þrep skráð þrep. Viðskiptavinir geta sjálfir ráðið gildi hvers þreps fyrir hvert undirviðmið fyrir sig og þannig stýrt vægi viðmiða.
Til að skrá inn þrepin - stofna nýja línu er farið í plúsinn neðst á myndinni. Í reitinn Þrep nr. er skráður sá stigafjöldi sem þrep á að gefa.
Þrepin eru síðan skráð á stöður og mynda þannig heildarstigatölu, verðmæti, stöðunnar.
Þrepin er annað hvort hægt að skrá inn á stöðu í gegnum viðhald stöðunnar. Þessi heildarstigatala er aðgengileg í launalistum í Kjarna., þ.e. Kjarni > Stofnskrár > Stöður, eða í gegnum lista sem inniheldur allar stöður, viðmið og þrep. Sá listi, Jafnlaunavottun - Viðmið - Stöður er einnig aðgengilegur í hliðarvalmynd undir Kjarni > Stofnskrár.
Skráning þrepa á stöðu. Stigin í dálkaröðinni Þrep eru svo lögð saman og birtast í reitnum Viðmið heildarstig á stöðunni.
Skráning þrepa í gegnum listann Stofnskrár > Jafnlaunavottun - Viðmið - Stöður
Ef undirviðmið eru t.d. 14 þá fara 14 undirviðmið á hverja stöðu.
Athugið að það hægir á listanum að draga svæðið Þrep lýsing inn í listann. Án þess svæðis á hraðinn aftur á móti að vera fínn.
Heildarstigatala hverrar stöðu er sýnileg á stöðunni auk þess sem hún er aðgengileg í jafnlaunavottunarlista.
Hægt er að birta persónubundin viðmið á Kjarnavef, sjá nánar hér