...
Hingað til hafa verið til staðlaðar starfsmannavefþjónustur sem skila núverandi færslum allra starfsmanna, eða núverandi færslum virkra starfsmanna. Nú hefur einnig verið bætt við annarri staðlaðri starfsmannavefþjónustu sem skilar öllum færslum, allra starfsmanna úr spjaldinu Tenging innan fyrirtækis. Þessa vefþjónustu er því hægt að nota til þess að birta sögu starfsmanna, t.d. í BI tólum. Þjónustan er /api/HrData/EmployeesAllOrg. Endilega sendið póst á service@origo.is ef þið viljið láta virkja þessa, eða aðrar þjónustur. Hér má sjá upplýsingar um allar þær vefþjónustur sem eru staðlaðar í Kjarna.
Kjarni smár
Í Windows 10 hafa verið að koma upp vandamál þar sem Kjarni er mjög smár og hefur bráðabirgðalausn á því verið að setja inn stillingu, sjá nánar hér. Lagfæring á að vera komin frá þriðja aðila sem Kjarni notar virkni frá og hefur sú lagfæring verið sett inn í útgáfu 18.10.1. Þetta mál ætti því að vera leyst. Ef notendur lenda áfram í þessu vandamáli þá væri gott að skoða skjáupplausnina á tölvunni og setja hana í 1920 x 1080, endurræsa tölvuna og svo Kjarna og sjá hvort Kjarni ræsist þá upp í eðlilegri stærð. Endilega sendið línu á service@origo.is ef þetta er enn vandamál og við skoðum málið frekar.