...
Búið er að bæta við stillingu þar sem hægt er að skilgreina fleiri netföng sem koma í Sendist frá þegar verið er að senda tölvupóst á umsækjendur. Ef óskað er eftir að fá þessa breytingu inn skal senda beiðni á service@origo.is
Bil fremst og aftast í nöfnum umsækjenda eytt út í ráðningarferli
Ef bil eru fremst eða aftast í nöfnum umsækjenda er þeim núna eytt út í ráðningarferlinu. Þetta var að hafa áhrif á það hvernig nafninu var skipt upp í reitina fornafn, millinafn og eftirnafn í Kjarna.