Breyting á leturgerð þegar auglýsing er stofnuð
...
Flytja marga umsækjendur - skilyrðingar
Því hefur nú verið bætt við Flytja marga umsækjendur að aðgerðin styðji skilyrðingar. Endilega sendið póst á service@applicon.is ef óskað er eftir því að skilyrða eða setja viðvörun á tiltekin svæði í Flytja marga umsækjendur.
Það kemur upp melding ef umsóknarformi er lokað
...
Ef netfang er notað sem innskráning á umsóknarvefnum og netfangið var ekki á réttu formi, skilaboð um að netfang sé ekki gilt hefur verið bætt við.
Hraðað á upphafsvalmynd ráðninga
Hraðað hefur verið á upphafsvalmynd ráðninga þannig að hún er nú mun fljótari að keyrast upp en áður.
Listinn Auglýsingasvör endurskrifaður
APPAIL-4314, APPAIL-4400, APPAIL-4496,
Listinn Auglýsingasvör var endurskrifaður m.t.t. hraða. Listinn er enn aðgengilegur af upphafsvalmynd ráðninga og úr lista yfir auglýsingar, þ.e. Kjarni > Ráðningar > Auglýsingar. Því til viðbótar hefur listanum verið bætt inn í hliðarvalmynd Kjarna, Kjarni > Ráðningar > Auglýsingasvör.
Þjóðerni bætt í listann Auglýsingasvör
Upplýsingum um þjóðerni umsækjenda hefur verið bætt í listann Auglýsingasvör.
Tenging kerfishluta við bréf
Þegar bréf er stofnað í ráðningarhluta Kjarna, Kjarni > Ráðningar > Bréf, þá fær það tengingu við kerfishlutann Ráðningar. Ef bréf, sem ætlað er ráðningum, er stofnað í mannauðshluta Kjarna, Kjarni > Stofnskrár > Bréf, þá fær það eðliilega ekki tengingu við kefishlutann Ráðningar. Þetta hefur m.a. áhrif þegar tengja á staðfestingarbréf á auglýsingu. Ef það bréf hefur verið stofnað í mannauðshlutanum þá kemur það ekki upp í lista yfir staðfestingarbréf því listinn sýnir einungis þau bréf sem hafa tengingu við ráðningarhlutann. Þar sem það getur alltaf komið upp að bréf sem tilheyra ráðningum séu stofnuð í mannauðshlutanum þá hefur því verið bætt inn að hægt sé að tengja bréf við kerfishluta eftir á. Það er gert með því að velja viðeigandi Kerfishluta (Source ID) á bréf.
Staðfestingarbréf á vef uppfærist strax
Ef stillingu fyrir staðfestingarbréf var breytt, þannig að annað staðfestingarbréf sendist út fyrir allar þær auglýsingar sem ekki eru með staðfestingarbréf sérstaklega tengt á sig, þá gat tekið nokkurn tíma áður en breytingin varð virk og nýja bréfið fór að sendast. Þessu hefur verið breytt þannig að nú tekur breytingin strax gildi.
Ráðning umsækjanda
Í einhverjum tilvikum kom upp villa þegar umsækjandi var merktur Ráðinn og ferlið fyrir stofnun starfsmanns kom því ekki upp. Gögn umsækjandans afrituðust aftur á móti eðlilega yfir í mannauðshluta og hægt var að klára stofnun hans þar. Í þessari útgáfu hefur verið komið algjörlega fyrir þá villu sem var að koma upp.