, m.v. daginn í dag. Ef smellt er á fríska hnappinn í valstikunni kemur upp valskjár þar sem hægt er að velja inn nýjar forsendur inn í listann.
Þegar listar með raungögnum eru opnaðir keyrist listinn upp með öllum starfsmönnum sem eru í starfi, í veikindarleyfi eða í fæðingar-/feðraorlofiHægt er að stilla kerfið þannig að þegar þeir listar sem eru undir Kjarni → Mannauður eru opnaðir kemur kerfið fyrst upp með valskjá svo hægt sé að velja inn skilyrði áður en listinn er keyrður upp. Þetta getur verið gagnlegt þegar verið er að vinna með stóra lista í kerfinu.
Stillingin er sett í XAP → Stillingar → Gildi: HrList HrLists.SelectionScreen
Í gildi er sett:
True: Ef að valskjár á að birtast um leið og smellt er á listann. Hægt er að komast framhjá valskjánum með því að halda inni Shift takkanum um leið og smellt er á listann.
False / eða engin færsla: Ef að valskjár á ekki að birtast um leið og smellt er á listann. Þá keyrist listinn upp með öllum starfsmönnum sem eru í starfi, í veikindarleyfi eða í fæðingar-/feðraorlofi.
...
Tímabil | |
---|---|
Undir tímabil er hægt að velja mismunandi tímabil sem stjórnast af dagsetningum í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis. Ef settar eru dagsetningar í reitina Gildir frá og Gildir til koma upp færslur á þeim starfsmönnum sem voru í starfi á því tímabili sem valið var. Ef starfsmaður fór í nýja stöðu á tímabilinu og er þ.a.l. með tvær færslur í spjaldinu tenging spjaldinu Tenging innan fyrirtækis á völdu tímabili kemur hann tvisvar í listann. Í flestum tilvikum er best að keyra listann með hak í „Í dag" en þá opnast listinn aðeins með þeim starfsmönnum sem eru í starfi hjá fyrirtækinu í dag. |
...
Fulltrúar | |
---|---|
Undir fulltrúar er hægt að velja inn starfsmenn sem tilheyra ákveðnum starfsmannafulltrúa, launafulltrúa eða tímastjóra hafi þeir verið skráðir á starfsmann í spjaldið tenging spjaldið Tenging innan fyrirtækis. |