...
Núna er hægt að senda inn beiðni fyrir launalausu leyfi og stjórnandinn getur samþykkt á Kjarna vef. Setja þarf inn stillingu til að tilgreina hvaða tegund stimplunar orlofsbeiðni fyrir launalausu leyfi á að fara á. Ef óskað er eftir að fá þessa virkni inn skal senda beiðni á service@origo.is
Stjórnandi haldist inni þegar verið er að skoða starfsmann sem
...
ákveðinn stjórnandi
Ef valið er að skoða starfsmenn fyrir ákveðinn stjórnanda (stjórnandi valinn í Sjá sem), starfsmaður valin og svo bakkað til baka þá hélst stjórnandinn sem var valinn ekki inni. Þetta hefur verið lagað.
Starfsmannalisti
...
- birtir starfsmenn sem ekki hafa hafið störf
Starfsmannalistinn á Kjarna vef birtir núna líka þá starfsmenn sem ekki hafa hafið störf.
Starfsmannalisti - Sía löguð fyrir svið
Sían fyrir svið var löguð í starfsmannalista. Hún var að sía á skipulagseiningu en ekki sviðið en þetta hafði ekki áhrif nema enginn starfsmaður var á skipulagseiningunni sem verið var að sía á.
Launabreyting - bætt við röðun í undirritun skjals
...
Núna þegar smellt er á línu í listanum yfir launabreytingar opnast hann í sprettiglugga. Áður var erfitt að sjá textan sem skráður var í rökstuðning ef textinn var langur.
Eigandi skjals fylgi tegund skjals
Þegar verið var að hengja skjal á starfsmann í viðhengjaflísinni annað hvort í gegnum Teymið mitt eða starfsmannalista þá birtast bara þær viðhengjategundir sem eru skilgreindar með eiganda skjals Starfsmaður eða Launamaður. Ef enginn eigandi er skilgreindur á tegund skjals þá birtist hún ekki. Hægt er að uppfæra eiganda skjals í client í Stofnskrár > Skjalaskápur - Tegundir skjala eða á vefnum undir Mannauður > Stofngögn > Áminningar og skjöl > Skjalaskápur - tegundir skjala. Ef óskað er eftir aðstoð við að fara yfir þessa stillingar skal senda beiðni á service@origo.is