Stillingar á því hvernig launaseðill er uppsettur eru skráðar inn í listann Launaseðill – uppsetning í hliðarvalmynd launa. Starfsmenn Applicon Origo setja launaseðilinn upp í samráði við notendur og er það hluti af innleiðingarvinnu í upphafi.
Notendur geta breytt uppsetningu sjálfir ef þess gerist þörf. Hægt er að fá ráðgjöf aðstoð hjá sérfræðingum Applicon Ráðgjöfum Origo við uppsetningu og breytingu á launaseðlum. Hægt Hægt er að vera með eins margar uppsetningar og þurfa þykir, alltaf er hægt að stofna nýjar og/eða breyta eldri.
Til að skoða hvaða launaliðir eru með tiltekna uppsetningu er tvísmellt á flokkinn og þar valið „Tilheyrandi launaliðir“ í efra hægra horni gluggans.
Stofna flokk |
---|
Til að stofna |
nýjan flokk er smellt á græna plúsinn í tækjaslánni. Nýjum flokki gefið númer og nafn, hakað í það sem við á í samantekt. Notið fellivalið til að ákveða hvaða texti á að koma á seðilinn. Fyrir neðan |
Samantektina eru tveir flipar, annars vegar Launafærsla og hins vegar Áramótafærsla. Launafærsla. Fellival er í boði til að ákvarða Tíma/einingar, taxtaupphæð og samtals laun/frádrátt. Núll kemur sjálfvalið í aukastöfum, en því má breyta með því að skrifa í staðinn fjölda þeirra aukastafa sem óskað er eftir. Einnig er hægt að sleppa því að birta launalið á launaseðli með því að haka í þar til gert hak beint fyrir neðan textann Launafærsla. |
Samantekt Hér er hakað í þá reiti sem óskað er eftir að dragist saman á launaseðli; Launaliður> Ef fleiri en ein skráning á launalið þá birtist hann í einni línu á launaseðli. Samantekt virkar ekki ef heitið er ekki það sama, s.s. ef búið er að yfirskrifa heiti launaliðar í skráningu launa. Stofnun> Dregið saman fyrir þá launaliði sem tilheyra sömu stofnun Allt samantekið fyrir orlof lagt í banka> Orlof langt í banka kemur í samantekið þó að orlof á laun séu með fleiri en eina línu. Tímabil> Ef óskað er eftir að draga launaliði saman í eina línu eftir tímabili Starfsmann> | |
Áramótafærsla Þessi flipi er sambærilegur við Launafærsluflipann. |
Draga launaliði saman í áramótastöðu á launaseðli |
---|
Hægt er að draga saman valda launaliði í áramótastöðu og birta þá þar undir nýju heiti. |
Þetta er t.d. gagnlegt við birtingu orlofsstöðu eða annarar stöðu sem samanstendur af fleiri en einum launalið. Réttindastaða launamanns verður fyrir vikið augljósari á launaseðli. Söfnun þarf einnig að nota á þá launaliði sem eiga að vera með söfnunarár í áramótastöðu eins og t.d áunnið orlof. Eftir að Söfnunarhópur hefur verið búinn til er hann tengdur á þá launaliði sem við á í Uppsetningu launaseðils, sjá hér að framan. Þá eru launaliðirnir sjálfir merktir „Ekki sýna í áramótastöðu“ en fá allir sama safnflokkinn og koma því í einni tölu á seðli. Launaliður sem á ekki að koma fram á launaseðli en á að vera með söfnunarár í áramótastöðu þá þarf söfnunin að vera stilltur þannig að svæðið Hópur á launaseðli sé Óskilgreint. Stofna „Söfnun“ Söfnunarhópur er stofnaður í Launaliðum í flipanum Tafla/Seðill/Hópar á hverjum launalið. Hægt er að vera með eins marga söfnunarhópa og þurfa þykir, alltaf er hægt að stofna nýja og eða breyta. Farið er í launaliði, tvísmellt á einn launalið og þar farið í flipann „Tafla/Seðill/Hópur“. Neðarlega í þeim flipa er svæðið „Söfnun nr“. Bendillinn staðsettur í númersvæði, CTRL takkanum haldið niðri og músin notuð til að smella á þrjá punkta hægra megin við númerasvæðið. Þá opnast nýr gluggi og þar er smellt á græna plúsinn til að stofna nýjan safnflokk. |
Dæmi Orlofs og desemberuppbót á að birtast á launaseðli en við viljum sameina þessa tvo liði undir Uppbætur í áramótastöðu.
|
2. Stofna launaseðils uppsetningu í „Launaseðill – uppsetning“ sem birtir launalið á launaseðli en ekki í áramótastöðu, sjá hér að framan. Tengja síðan þennan söfnunarhóp við þá launaseðils uppsetningu neðst í flipanum „Áramótafærsla“ |
3. Tengja nú uppsetningu launaseðils á launaliðinn. |