Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

...

Nú er hægt að setja inn stillingu til að birta yfirvinnutímabil útborgunar á launaseðli í stað þess að festa tímabilið eins og fyrri stilling gerir. Hægt er að senda beiðni á service@origo.is til að láta virkja þessa stillingu.

Orlof á laun - skipting eftir reiknitegundum

APPAIL-10800

Útbúin hefur verið skipun þar sem hægt er að skipta orlofsreikningi eftir reiknitegundum. Td. ef þörf er á að aðgreina orlof sem reiknast af dagvinnu og yfirvinnu og þá reiknast það á sitthvorn launaliðinn. Hægt er að fá aðstoða frá ráðgjöfum Origo við þessa stillngu með því að senda póst á service@origo.is

Launabreytingar - Bæta við möguleika á að eyða beiðni

...

Undir Launabreytingar er nú hægt að birta bæði svið og núvernadi laun.

Launabreytingar - Launatöflubreytingar

APPAIL-9552

Nú er hægt að framkvæma launabreytingar í Kjarna fyrir starfsmenn sem eru á launatöflum sem fylgja kjarasamningum þannig að verið er að færa þá í ákveðna launaflokka og þrep sem búið er að skilgreina í launatöflu. Setja þarf inn stillingu í Gildi með upptalningu á númerum þeirra launataflna sem við á. Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við þær stillingar ef send er beiðni þess efnis á service@origo.is. Sjá frekari upplýsingar í handbók: Launabreytingar á vef

Launabreytingar - Birting mánaðarlauna

APPAIL-10572

Birting mánaðarlauna í launabreytingum var upphaflega þróuð þannig að fjárhæðin kæmi úr föstum liðum. Það var að valda því að hjá þeim sem ekki eru að nota fasta liði kom engin fjárhæð fram fyrir mánaðarlaunin. Virknin hefur verið lagfærð þannig að ef ekkert er skráð í fasta liði fá er fjárhæð mánaðaralauna sótt í grunnlaunaspjald.

Launabreytingar - Virkni þegar beiðni er samþykkt

APPAIL-10778

Þeir sem ekki eru að nota rafrænar undirritanir geta núna sent tölvupóst á starfsmenn þegar launabreyting er samþykkt. Sjá nánari upplýsingar í handbók: Launabreytingar á vef

Möguleiki á að skilyrða launahóp á útborgun

...

Hægt er að bera saman allt að fjórar áætlanir, bæði innan árs og á milli ára ef dálkalistinn er þannig uppsettur. Þetta á við um bæði dálkalista í client og á vef. Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við stillingar á dálkalistum vegna áætlana og er best að senda beiðni þess efnis á service@origo.is.

Jafnlaunavottun - Ytri aðilar birtast í skýrslu

APPAIL-10868

Ytri aðilar voru farnir að birtast í skýrslunni Jafnlaunavottun en eiga ekki að gera það þar sem þeir fá ekki greidd laun. Þetta hefur verið lagfært og þeir birtast ekki lengur.

Jafnlaunavottun - Birting mánaðarlauna miðað við 100%

APPAIL-10811

Í dálknum “Birting mánaðarlauna miðað við 100%” hefur verið stuðst við útreikning útfrá greiddum stöðugildum. Sá útreikningur hefur valdið vandræðum hjá viðskiptavinum sem reikna stöðugildi af fleiri launaliðum en dagvinnuliðum. Útbúin hefur verið stilling til að breyta virkni þessa dálks þannig að hann sæki fjárhæðirnar í grunnlaunaspjöld starfsmanna í stað uppreiknings útfrá stöðugildum. Þeir sem vilja breyta virkni dálkisns geta því sent beiðni á service@origo.is og óskað eftir að skipunin verði virkjuð.

PwC skýrsla - lagfæra dálkinn Grunnlaun

APPAIL-10915

Dálkurinn “Grunnlaun (Mánaðarlaun m.v. fullt starf í dagvinnu)” var ekki að birta réttar fjárhæðir hjá starfsmönnum á tímakaupi. Það hefur nú verið lagfært.

Starfsaldursskýrsla - Bæta inn heiti tegundar

APPAIL-10522

Í starfsaldursskýrslu birtist aðeins númer tegundar. Nú er einnig hægt að draga inn heiti tegundar er óskað er.