...
Athugasemd hefur verið bætt við aðgerðina Flýtiráðning ef starfsmaður með viðkomandi kennitölu er þegar til í Kjarna. Þetta er sambærileg athugasemd og kemur upp í ferlinu Stofna starfsmann. Hægt er að halda áfram með flýtiráðninguna þrátt fyrir þessa athugasemd, ef t.d. starfsmaðurinn er að færast til í starfi. Viðkomandi starfsmaður fær þá nýja færslu í spjaldið Tenging innan fyrirtækis og það sama gerist með önnur þau spjöld sem fyllt er út í upplýsingar fyrir í flýtiráðningunni.
...
Flýtiráðning - Skattkortasvæði
Svæðið Skattkort út er nú birt í aðgerðinni Flýtiráðning og svæðið Skattkort inn hefur verið tekið út í staðinn.
Ferillinn Starfslok starfsmanna - Grunnlaunaspjald
Þegar ferillinn Starfslok starfsmanna er keyrður, þá er hægt að slá inn lokadagsetningu grunnlaunaapjalds, en það svæði heitir Síðasti útborgunardagur.
Ef starfsmaður er með skráða framtíðarfærslu í grunnlaunaspjaldi sem tekur gildi eftir skráðan síðasta útborgunardag kemur upp listi yfir þær fæslur. Ekki er hægt að flytja listann yfir í excel en það er hægt að ljóma upp línurnar og afrita með Ctrl+V C og flytja þannig yfir í excel með Ctrl+V ef um marga starfsmenn er að ræða. Við vistun starfsloka kemur valin dagsetning sem til dagsetning gildrar færslu í grunnlaunaspjaldi.
Ferillinn Starfslok starfsmanna - Ástæða starfsloka
Þegar ferilinn Starfslok starfsmanna er notaður og valin er "Ástæða starfsloka" kom "Óskilgreint" í spjaldið Tenging innan fyrirtækis en ekki sú ástæða sem var valin, t.d. Uppsögn. Þetta hefur nú verið lagað þannig að sú ástæða sem er valin birtist í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis.
Endurráða starfsmenn - banka- og lífeyrissjóðsupplýsingar
Vistun banka- og lífeyrissjóðsupplýsinga í aðgerðinni Endurráða starfsmenn hefur verið yfirfarin.
Númer aðgangskorts
...
Nafnasvæði í spjaldinu Starfsmaður
Í spjaldinu Starfsmaður hefur eingöngu verið svæði sem sýnir fullt nafn starfsmanns. Nú er möguleiki á að sýna líka nafnið uppskipt ef viðskiptavinir vilja það. Setja þarf þá inn stillinguna EmployeeMasterAdditionalNameFields = true. Við það birtast þessi viðbótarsvæði í starfsmannaspjaldinu og fyllt er út í þau út frá nafninu í upprunalega nafnasvæðinu.
Starfsmannatré - skipulagseining
Í starfsmannatrénu hefur textanum Launamannanr. verið skipt út fyrir nafn skipulagseiningarinnar sem starfsmaðurinn tilheyrir í viðkomandi starfi. Með þessu móti þarf ekki að fara inn spjaldið Tenging innan fyrirtækis til þess að sjá hvorri einingunni viðkomandi launamannanúmer tilheyrir heldur sést það strax í starfsmannatrénu.
Áminningar - póstur á yfirmann
Upp kom að áminningarvirknin sendi út póst á fyrrverandi yfirmann starfsmanns t.d. ef reynsluráðningu var að ljúka. Þetta hefur nú verið lagað og áminning sendist nú eingöngu á núverandi yfirmann.
Einnig kom upp ef starfsmaður var með tvö launamannanúmer þá var að sendast áminning á yfirmann í starfi nr. 1 þó starfsmaðurinn væri ekki lengur í því starfi. Það hefur einnig verið lagað og er bara send áminning á yfirmann núverandi starfs.
Áminningar - hættir starfsmenn
Áminningar voru að sendast út fyrir hætta starfsmenn. Því hefur nú verið breytt. Ef ekki á að senda út áminningu fyrir starfsmenn sem eru hættir þarf að setja inn stillinguna Reminder.Excluded.EmployeeStatuses í Stillingar og í Gildi eru talin upp númer þeirra ráðningarmerkinga sem á að undanskilja. Ef stillingin er ekki sett inn þá sendast áminningar fyrir hætta starfsmenn áfram.
Hafið samband við ráðgjafa okkar ef óskað er eftir aðstoð við að setja inn þessa stillingu, service@origo.is.
Spjaldið Tenging innan fyrirtækis - Starfsmaður í tímaskráningarkerfi
Í spjaldinu Tenging innan fyrirtækis hefur verið gerð sú breyting að þegar starfsmaður er skráður Hættur, Á starfslokasamningi eða Á eftirlaunum þá fer hakið úr Starfsmaður í tímaskráningarkerfi sjálfkrafa.
Það hefur líka verið lagað að ef hakað er sérstaklega í svæðið þrátt fyrir þessar ráðningarmerkingar þá birtist hakið alltaf þegar farið er inn í spjaldið eftir á.
Starfslok starfsmanna - Starfsmaður í tímaskráningarkerfi
Þegar keyrð er aðgerðin Starfslok starfsmanna er hakið sjálfkrafa tekið úr svæðinu Starfsmaður í tímaskráningarkerfi í Tenging innan fyrirtækis færslu starfsmanna sem verður til við þessa aðgerð.
Flýtiráðning - Tenging við tímaskráningarkerfi
Þeirri virkni hefur verið bætt við að þegar starfsmaður er stofnaður í gegnum Flýtiráðningu þá er núna kallað í tengingu við tímaskráningarkerfi sé hakað í Starfsmaður í tímaskráningarkerfi..
Þá er starfsmaðurinn stofnaður í tímaskráningarkerfi strax þegar hann er stofnaður í Kjarna á þennan hátt.