Kjarni byggir á öflugu skýrslugerðatóli þar sem hægt er að taka nánast hvaða upplýsingar sem skráðar eru í kerfið út í skýrslum og listum. Skipta má gögnum í Kjarna upp í tvennskonar gögn, |
annars vegar stofngögn og |
hins vegar raungögn um starfsmann. Stofngögn eru lesin eða slegin inn í kerfið og síðan nýtt til að búa til raungögn. Flestir listar í kerfinu opnast þannig að ekki er hægt að breyta gildum í þeim beint úr listanum sjálfum nema ýta á viðeigandi hnappa í tækjastikunni. Hægra megin í tækjastikunni er Select hnappur. |
Þegar ýtt er á hann opnast listinn í nýjum glugga á þannig formi að hægt er að slá gildi beint inn í reitina í listanum. Athugið að ýta þarf á VISTA hnappinn áður en listanum er lokað til að færslurnar vistist í honum. |