...
Stillingar á upphafsvalmynd | |
---|---|
Það er stillingaratriði hvort einföld upphafsvalmynd fyrir auglýsingarnar er birt eða önnur ítarlegri. Einnig er stillingaratriði hversu gamlar auglýsingar og umsóknir birtast á yfirlitinu á upphafsvalmyndinni. Aldur auglýsinganna miðast við umsóknarfrestinn. Stillingarnar er að finna í kerfisvalmynd undir XAP > undir Stillingar > Gildi. | |
Stillingin RCAdvertStartupList með gildið RCAdvertStartupMore.List er sett inn til þess að kveikja á að ítarlegri upphafsvalmynd fyrir auglýsingarnar. Hægt er að stilla inn að 1 eða 2 dálkar birtist fyrir ákveðnar stöður umsókna og að þessir dálkar dragist frá lausum stöðum ásamt ráðningarmerkingunni til að mynda niðurstöðuna í Eftirstöðvar. Stilling fyrir fyrri dálkinn er RCStartup.StatusColumn.1 Stilling fyrir seinni dálkinn er RCStartup.StatusColumn.2 Í Gildi er sett inn númer þeirrar Stöðu umsóknar sem á að birta. Númer Stöðu umsókna eru aðgengileg í hliðarvalmynd Kjarna undir Kjarni > Ráðningar > Staða umsóknar. Fyrirsagnir dálkanna verða nöfn á þeim stöðum umsókna sem stilltar eru inn. | |
Auglýsingar: RCStartup.RCAdvertDays Í dæminu hér til hliðar er verið að birta auglýsingar 10 daga aftur í tímann og 15 nýjustu umsóknirnar. |
...