Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

...

Til að sækja rauntölur í áætlun er smellt á Sækja rauntölur í áætlunar hringnum. Þá opnast valskjár þar sem þarf að setja inn skilyrði fyrir rauntölur.

Ár: Setja þarf inn það ár sem sækja á rauntölur til.

Mánuðir: Velja þarf inn þá mánuði sem sækja á rauntölur í. Í dæminu hér fyrir ofan er valið að sækja rauntölur fyrir febrúar, mars og apríl á árinu 2016. Til dagsetning launafærslunar ræður hvaða mánuði færslan tilheyrir, þannig mun yfirvinna með tímabilinu 15.febrúar til 14.mars koma inn sem rauntölur fyrir mars í áætlun.

Launamaður: Ef sækja á rauntölur aðeins fyrir ákveðna starfsmenn eru viðeigandi starfsmenn valdir inn í þennan reit.

Launaliður: Hér eru valdir inn þeir launaliðir sem sækja á rauntölur fyrir. Í dæminu hér fyrir ofan er valið að sækja rauntölur fyrir launaliðinn 1600, Yfirvinna. Athugið að þeir launaliðir sem notaðir skulu til að sækja rauntölur, verða að vera stilltir inn í upphafsmynd (Miðja hrings - Áætlun).

Launatafla: Þetta val er óvirkt, ekki er tekið tillit til þess ef skráður er einn eða fleiri samningar hér inn, allir samningar eru skoðaðir þrátt fyrir það.

Skipulagseining: Ef sækja á rauntölur aðeins fyrir starfsmenn ákveðinna skipulagseininga eru þær valdar inn hér.

Tegund ráðningar: Ef sækja á rauntölur aðeins fyrir starfsmenn með ákveðna tegund ráðningar eru þær valdar inn hér.

Aðgerð

Færsluskrá: Segir til um hvort að færslurnar séu launafærslur, hvort þær komi úr áætlun eða skuldbindingu. Meginreglan er að um launafærslur sé að ræða.

Niðurstaða: Segir til um hvert niðurstaðan skuli skráð. Í öllum tilvikum er niðurstaðan skráð í Áætlun.

Tegund: Tegund segir til hvort um sé að ræða einingu, tíma eða samtölu. Í dæminu hér fyrir ofan er verið að sækja þær einingar sem skráðar hafa verið á launaliðinn 1600 (Yfirvinna).

Stuðlar: Hægt er að breyta stillingum á stuðlum rauntalna. Kerfið gengur út frá því að stuðlarnir séu 1 x sami fjöldi og árið áður. Dæmi: Ef að yfirvinnan í mars árið áður voru 25 tímar setur hún 25 tíma í yfirvinnu á áætlunar árið.

Í vissum tilvikum getur verið að forsendurnar eigi ekki að vera nákvæmlega eins og árið áður. Með því að smella á Stilla stuðla er hægt að setja inn aðrar forsendur áður en rauntölur eru sóttar.

Ef sækja á rauntölur frá einum mánuði og flytja þær inn í alla mánuði áætlunar þarf að skilgreina stuðlana svona:

Image Added

Númer þess mánaðar sem flytja á í alla mánuði áætlunaer þá skárð líkt og á myndinni hér að ofan.