Versions Compared

Key

  • This line was added.
  • This line was removed.
  • Formatting was changed.

...

Áður en skipun er keyrð þarf að setja inn stillingu í XAP → flipann Stillingar → Gildi sem segir til um hversu gömlum umsóknum / umsækjendum á að eyða. 

Stillingin í XAP → Stillingar → Gildi er:

RCApplicant.DeleteOlderThan  → Í gildi er síðan sett inn sá mánaðarfjöldi sem á að miða við. Sem dæmi þá er sett 6 í reitinn gildi ef fyrirtæki vilja aðeins geyma umsóknir í 6 mánuði. 

...

Til að eyða öllum umsóknum sem er eldri en sá mánaðarfjöldi sem tilgreindur er í XAP → Stillingar Gildi er farið í hliðarvalmynd Kjarni - Ráðningar - Eyða gömlum umsóknum 

...

Þessi aðgerð eyðir þá öllum umsóknum sem eru eldri en sá mánaðarfjöldi sem tilgreindur er í XAP → Stillingar Gildi. Í dæminu hér fyrir ofan myndu eyðast allar umsóknir sem væru eldri en 6 mánaða. Kerfið fer í sömu skipun í gegnum alla umsækjendur í kerfinu sem eiga umsóknir. Ef að umsækjandi hefur ekki sent inn neina aðra umsókn á þessum mánaðarfjölda sem tilgreindur er þá eyðir kerfið öllum gögnum umsækjanda líka. Ef að umsækjandi hefur sótt um annað starf þá eyðist hvorki umsækjandinn né nýja umsóknin heldur aðeins allar umsóknir frá viðkomandi sem voru eldri en mánaðarfjöldinn sem tilgreindur var. 

...

Til að eyða öllum umsækjendum sem eru eldri en sá mánaðarfjöldi sem tilgreindur er í XAP → Stillingar Gildi er keyrð skipunin RCApplicant.DeleteOrphan 

Skipunin eyðir þá öllum umsækjendum sem hafa ekki loggað sig inn á umsóknarvefinn á þeim mánaðarfjölda sem tilgreindur er í XAP Stillingar →  Gildi. Skipunin til að eyða umsóknum eyðir öllum þeim umsækjendum sem áttu umsókn, en hafi umsækjandi aldrei sent inn umsókn eyðist hann ekki út með þeirri skipun. Því þarf að keyra þessa skipun fyrir þá umsækjendur sem aldrei hafa átt umsókn.

...