Skýrsla sem sýnir hvaða launaliðir eru skráðir á hvern launamiðareit (Áramót)
Undir Launaliðir í Launamiða valmynd er nú hægt að taka út lista yfir launaliði í launamiðum. Þannig er hægt að sjá hvaða launaliðir eru skráðir á hvern launamiðareit.
Launaáætlun - Óskilgreindir launaliðir koma ekki upp í skráningu og skila villuboðum
Ef launaliður er ekki skilgreindur undir “Launaliður í skráningu” í helluvalmynd áætlunar kemur hann ekki upp þegar smellt er á þrjá punkta í svæði launaliða við skráningu í áætlun. Ef reynt er að skrá í áætlun launlið sem ekki hefur verið skilgreindur koma núna villuboð um að ekki megi skrá áætun á þann launlið.
Sækja ávinnslur - Desemberuppbót
Ef ávinnslutímabil desemberuppbóta var skilgreint “Milli ára” þá þurfti að muna eftir að setja inn eldra ár þegar ávinnslur voru sóttar svo að ávinnslur frá desember á fyrra ári kæmu með. Þetta hefur nú verið útfært þannig að eldra ár kemur með þegar ávinnslur eru sóttar og ekki þarf lengur að muna sérstaklega eftir að setja það inn. Eldra ártalið hefur einungis áhrif á þær ávinnslur sem skilgreinar eru “Milli ára”.
Ekki hægt að opna “Skoða” eða “Skila” ef ekki er skráð stofnunarnúmer á innheimtu í launaskráningu
Ef færsla sem inniheldur innheimtu sem krefst stofnananúmers td. starfsmannafélag kom inn í PayRecord úr föstum liðum eða innlestri eða bara með öðrum leiðum en beint úr "Skrá laun" þá var ekki hægt að opna Skoða eða Skila og villboðin voru ekki mjög skýr. Þetta hefur verið útfært þannig að vöntun á stofnananúmeri hindrar ekki opnun á “Skoða” og “Skila” heldur skilar athugasemd í skilagreinatréið.
Hægt er að tvísmella í línuna sem skilar “is null” og fá upp lista yfir þær færslur sem vantar stofnun á. Þar er hægt að draga inn nafn til að sjá hjá hvaða launnþega vantar númer fyrir stofnun.
Lokun útborgunar - aðvörun ef launþegi er með launafærslur en lokað grunnlaunaspjald
Þegar útborgun er lokað kemur Kjarni núna með villuboð ef einhver launþegi í útborguninni er með launafærslur á sér en lokað grunnlaunaspjald.
Svæðinu Flokkun bætt í “Velja svið” í dálkalista
Nú er hægt að draga “Flokkun nafn” og “Flokkun nr” inn í nýja dálkalista. Ráðgjafar Origo geta aðstoðað við að ná þessum sviðum inn í eldri dálkalista. Sendið beiðni á service@origo.is ef þess er óskað.
Flytja ávinnslu í skráningu
Bætt hefur verið við þeim valmöguleika í valskjá við fluttning ávinnslu í skráningu að eyða áður fluttum færslum. Þá er hægt að endurvinna ávinnsluna og haka í “Eyða skuldbinding fyrir” ef senda þarf nýjar færslur í skráningu.