Ráðningar - umsóknarvefur - lagfæring á gleymdu lykilorði
Ef umsækjandi átti notanda sem var stofnaður á netfangi og reyndi að óska eftir nýju lykilorði var ekki hægt að endursetja lykilorðið. Þetta hefur verið lagað. Athugið þetta á bara við um notandinn var til á netfangi, ekki kennitölu.
Skýrslan Breytingasaga - lagfæring á aðgangsstýringum
Skýrslan Breytingasaga sem kom í útgáfu 23.1.1 var eingöngu aðgengileg admin notendum. Bætt hefur verið við aðgangsstýringu að þessari skýrslu. Ef óskað er eftir að bæta þessari skýrslu í hlutverk með takmarkaðan aðgang skal senda beiðni á service@origo.is
Mynd starfsmanns birtist ekki í aðgerðinni Prenta aðgangskort
Mynd starfsmanns var ekki að birtast þegar farið var í aðgerðina Prenta aðgangskort. Þetta hefur verið lagað.
Mötuneyti og verslanir - bæta við dálki Fyrirtæki í Ytri viðskiptavinir
Dálknum Fyrirtæki var bætt við listana Færslur í verslun og Færslur í mötuneyti undir Ytri viðskiptavinir.
Dagpeningar - stilling fyrir sjálfvalið gildi á Starfsmannavef
Hægt er að setja inn stillingu fyrir sjálfvalið gildi á tegund - Gisting, Annað, Samtals. Ef óskað er eftir að setja inn stillingu til að breyta sjálfvöldu gildi skal senda beiðni á service@origo.is
Viðbótarsvæði í launavefþjónustu
Eftirfarandi svæðum var bætt við launavefþjónustuna.
Mánaðarheitum, áður voru bara mánaðarnúmer.
Bókunarári - bókunardegi, t.d. 23-5, svo ekki þurfi alltaf að velja inn bæði ár og mánuð.
Kyni
Fæðingardegi
Starfshlutfalli úr vinnutímaspjaldi